Fréttir

Kyrrðardagur verður í Glerárkirkju laugardaginn 10. febrúar kl. 10-17.

Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð. Verð: 2000 kr. Skráning í síðasta lagi fyrir fimmtudaginn 8. febrúar í síma 897 3302 eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is.

Sunnudagur 4. febrúar.

Messa og sunnudagaskóli kl: 11:00 Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Sameginlegt upphaf í messu. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaot organista. Umsjón með sunnudagaskóla Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir djákni.

Sunnudagur 28. janúar.

Fjölskylduguðþjónusta kl. 11:00. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Barna- og Æskulýðskór Glerárkirkju syngur undir stjórn Margrétar Árnadóttur. Kvöldmessa kl. 20:00 Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur.

Samkirkjuleg bænavika

Samkirkjuleg bænavika 18. - 25. janúar 2018 Almennt - fimmtudagur 18. janúar 2018 - 10:54 Dagskrá: Fimmtudagur 18. janúar kl. 12.00 Kyrrðar- og fyrirbænstund í Þjóðkirkjunni í Akureyrarkirkju. Sunnudagur 21. janúar kl. 11.00 Útvarpsguðsþjónusta frá Grensáskirkju í Reykjavík.Bænavikan kynnt í guðsþjónustum safnaðanna á Akureyri og nágrenni. Mánudagur 22. janúar kl. 20.00 Bænastund í Hvítasunnukirkjunni, Skarðshlíð 20. Þriðjudagur 23. janúar kl. 20.00 Aftansöngur í Kaþólsku kirkjunni, Péturskirkju, Hrafnagilsstræti 2. Miðvikudagur 24. janúar kl. 12.00 Bænastund á Hjálpræðishernum, Hvannavöllum 10. Miðvikudagur 24. janúar kl. 20.00 Guðsþjónusta í Aðventkirkjunni í Gamla Lundi, Eiðsvallagötu 14. Fimmtudagur 25. janúar kl. 20.00 Sameiginleg samkoma, með þátttöku trúfélaga á Akureyri í Glerárkirkju.

Fimmtudagur 18. janúar.

Eldriboragarasamvera kl. 15.00. Gestur samverunnar verður Gestur Einar Jónasson sjónvarpsmaður á N4 og forstöðumaður Flugsafns Íslands. Sætaferðir verða frá Lindarsíðu og Lögmannshlíð. Allir velkomnir.

Sunnudagur 14. janúar

Messa og sunnudagaskóli. kl. 11:00 Sr. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Sunnudagaskóli er í umsjón Sindra Geirs Óskarssonar kennara og guðfræðings.

7. janúar - Þrettándamessa.

Jólin kvödd kl. 11:00. Sr. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots. Allir velkomnir.

1. janúar - nýarsdagur.

Hátíðarmessa kl. 14:00. Séra Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots. Allir velkomnir.

26. desember - Annar í jólum.

Fjölskylduguðþjónusta kl. 13:00. Sr. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir þjónar. Barna- og Æskulýðskór Glerárkirkju syngur undir stjórn Margrétar Árnadóttur. Í Guðþjónustunni verður sýndur helgileikur.

25. desember - Jóladagur.

Hátíðarguðþjónusta kl. 13:30. Sr. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Allir velkomnir