Febrúar 2014

Kristin íhugun og bæn - andleg iðkun kirkjunnar
Fræðslukvöld í Glerárkirkju á miðvikudagskvöldum í febrúar 2014

Fyrirlesarar

Fyrirlesararnir og leiðbeinendurnir á miðvikudagskvöldunum í febrúar hafa allir lagt stund á þá bænahefð sem þeir kynna og leiðbeina í.

Umræður

Eitt af markmiðum með þessum kvöldum er að gefa þeim sem áhuga hafa möguleika að ræða um andleg mál til að auðga sig og aðra með gefandi samtali.

Iðkun

Námskeiðið hefur einnig það að markmiði að stíga lengra en fræðileg umræða gerir með því að leiðbeina þátttakendum um nokkrar íhugunarhefðir kirkjunnar. Kvöldin enda með íhugun. Auk þess verður boðið upp á kyrrðardag á Möðruvöllum í Hörgárdal 15. mars þar sem iðkun íhugunar verður í fyrirrúmi í þögn og bæn.

Ljós og kross í GlerárkirkjuKristin íhugun og bæn - andlega iðkun kirkjunnar 

Kristin íhugun hefur verið stunduð um aldir. Til eru ýmsar aðferðir og verða nokkrar þeirra kynntar. Íhugun er andleg heilsurækt og þáttur í trúarlegri uppbyggingu kristins fólks í erli dagsins.

Sjá http://kristinihugun.is/

Byrjað er á kynningu, þá er kaffi og umræður og að lokum íhugun. Kvöldin eru öllum opin og kosta ekkert.

Dagskrá á Pdf-formi 

Auglýsinga á Pdf-formi

Dagskrá:

 

Miðvikudaginn 5. febrúar

Gunnlaugur Garðarsson

Sr. Gunnlaugur Garðarson, sóknar-prestur í Glerárkirkju. Hann hefur kynnt sér bænahefð og helgihald Rétttrúnaðarkirkjunnar. Hann hefur dvalið um lengri og skemmri tíma í klaustrum þeirra.

Bæn hjartans – Jesúbænin. Íhugunar og bænahefð Rétttrúnaðarkirkjunnar.

Þar segir hann frá heimsóknum sínum í klaustur rétttrúnaðarkirkjunnar á Aþos-skaganum á Grikklandi, klaustrinu á eyjunni Patmos, Vallamo í Finnlandi og klaustri sem Arkimadrita Sofroni stofnaði þar sem hann hefur dvalið reglulega. Stofnandi klaustursins hefur tekið saman merkan texta um Jesúbænina eftir kenniföður sinn, heilögan Silouan.

Sr. Gunnlaugur fór svo yfir Biblíutexta sem liggja Jesúbæninni til grundvallar, jafnframt deildi hann með áheyrendum sínum þekkingu sinni og reynslu á bæn hjartans eins og hann hafði tileinkað sér í helgihaldi og iðkun í rétttrúnaðarkirkjunnar. Honum tekst vel að miðla þessari miklu bænahefð og leiðbeina um notkun Jesúbænarinnar.

 

 Miðvikudaginn 12. febrúar

Vigfús Ingvar IngvarssonSr. Vigfús Ingvar Ingvarsson, fyrrum sóknarprestur á Egilsstöðum. Á síðastliðnu ári skrifaði hann mastersritgerð um bænahefð Loyola, reglu Jessúíta. Hann hefur í starfi sínu lagt áherslu á andlega iðkun.

Íhugun og andlega fylgd samkvæmt hefð Ignatiusar Loyola en Nonni (Jón Sveinsson) var af reglu hans.

Sr. Vigfús Ingvar sagði frá þessari hefð sem á rætur að rekja til Loyola stofnanda jesúítareglunnar og bókar hans Andlegar æfingar. Eitt af einkennum hennar er að hlusta, hlusta á sjálfan sig og dýpstu þrár sínar, á aðra menn og þannig hlustar maður eftir Guði í lífi sínu. Hann nefndi að hann hefði verið á viku námskeiði þar sem þetta hefði verið aðal viðfangsefnið – að hlusta. Hann benti á að þau sem njóta andlegrar leiðsagnar eru algjörlega á sínum forsendum og leiðbeinandinn bregst við til þess að leiða þau áfram á sinni andlegu vegferð. Innlifun í frásagnir Biblíunnar er ríkur þáttur í þessari hefð. Taldi hann að Gunnar F. Guðmundsson í ævisögu sinni um Jón Sveinsson, mjög svo góðri, hafi yfirsést þetta atriði, þar sem Nonni var andlegur leiðbeinandi í reglu sinni. Það ásamt lifandi frásagnahefði í heimalandinu hefði verið stór þáttur í ritstörfum hans. Fannst mér það jafnframt skýra þá barnslegu heiðríkju sem er í ritstörfum hans. Andlegt ferðalag sem þetta er alfarið undir merki frelsisins og lífsins eins og það er í raun.


“Biðjið og yður mun gefast, ... knýið á og fyrir yður mun upplokið verða.” 
Jesús, Meistari bænarinnar

 

Miðvikudaginn 19. febrúar

Hjalti ÞorkelssonSr. Hjalti Þorkelsson, prestur Kaþólsku kirkj-unni á Akureyri. Prestar Kaþólsku kirkjunnar og reglufólk biðja daglega tíðabænir á ákveðnum tíma dags, hver fyrir sig eða saman þar sem það hentar.

Tíðabænir, daglegar bænir kirkjunnar.

 Sr. Hjalti gerði góða grein fyrir bakgrunn tíðabænanna bæði meðal kristinna manna en einnig meðal annarra. Hann skilgreindi tíðabænina að það væri bæn sem væri beðin á ákveðnum tíma dags. Þá lýsti hann tíðabænunum í Kaþólsku kirkjunni og hvernig hún væri í dag meðal reglufólks, presta og almennings. Hann taldi tíðabænina mikilvæga fyrir kristnina og minninguna um Krist og eftirfylgdina við hann. 

 

 

 

Miðvikudaginn 26. febrúar

Guðrún Eggertsdóttir

Sr. Guðrún Eggertsdóttir er sjúkrahúsprestur og hefur kynnt sér og iðkað Kyrrðarbænina undanfarin ár. Hún hefur verið þátttakandi í fræðslu og kyrrðardögum hér heima og erlendis og leitt vikulegan Kyrrðar-bænahóp á Akureyri undanfarin sex ár.

 

Kyrrðarbæn. Um að játast nærveru Guðs og eiga við hann samfélag í djúpri kyrrð.

Sr. Guðrún Eggertsdóttir sagði frá sögu kyrrðarbænarinar sem hún rakti til bókar er var gefinn út á 14. öld The Cloud of the Unknowing. Bæning á sér þó lengri sögu sem þáttur í íhugunar og hugleiðsluhefð kristinnar kirkju. Sá sem hefur endurnýjað í seinni tíð kyrrðarbænina eða "centering prayer" eins og hún er nefnd á ensku er Thomas Keating, trappista munkur. Hann hefur gert bænina aðgengilega nútíma manninum og kennt hana þannig að hún verði mönnum að gagni í nútímanum. Nýlega hefur grundvallarrit hans um efnið verið gefin út á íslensku: Vakandi hugur, vökult hjarta. Um kyrrðarbænina - Centering Prayer. Útgefandi Skálholtsútgáfan 2013. Í erindi sínu veitir hún einfaldar leiðbeiningar um notkun bænarinnar og iðkun. Hún nefnir fjögur leiðarljós: 1. Veldu þér bænarorð sem tákn um þann ásetning þinn að játast nærveru Guðs og verki hans hið innra með þér. 2. Komdu þér þægilega fyrir með lokuð augu. Berðu fram orðið, í hljóði, sem tákn um þann ásetning þinn að játast nærveru Guðs og verki hið innra með þér. 3. Þegar við verðum upptekin af hugsunum okkar snúum við okkur blíðlega að bænarorðinu á ný. 4. Við höfum augun áfram lokuð í fáeinar mínútur að bænastund lokinni. Hér má horfa á fyrirlesturinn.

Kyrrðardagur á Möðruvöllum í Hörgárdal 15. mars kl. 10-16

Leikhúsið á Möðruvöllum í Hörgárdal

Kyrrðardagur verður á Möðruvöllum í Hörgárdal laugardaginn 15. mars. Hann hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 16:00. Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð. Notuð verður aðstaðan í Leikhúsinu á Möðruvöllum og Möðruvallakirkju. Kostnaði verður haldið í lágmarki.

Kyrrð, íhugun, útivist og hvíld

Umsjón hafa:  Sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur (860 0545) og sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur (897 3302), og Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni í Glerárkirkju (464 8807). Þau veita upplýsingar og skrá á námskeiðið á skrifstofutíma. Einnig er hægt að senda netpóst til Guðmundar: gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is