Eldri borgarar

Síðdegissamverur sem eru ekki einungis ætlaðar eldri borgurum heldur öllum sama hafa tíma og tök til að láta sjá sig á virkum degi í kirkjunni eru haldnar þriðja fimmtudag í mánuði yfir vetrartímann í Glerárkirkju. Nánari tímasetningar eru auglýstar í Dagskránni hverju sinni. Umsjón með samverunum hafa prestar kirkjunnar auk organista. Gjarnan koma gestir og flytja fræðsluerindi eða tónlist. Þá er boðið upp á kaffihlaðborð á sanngjörnu verði, spjall og helgistund. Þetta eru uppbyggjandi og fræðandi stundir. Áhugasamir eru hvattir til að spyrjast fyrir um akstur á samverurnar sem eru í boði m.a. frá Lindasíðu og Lögmannshlíð. 

Umsjón með samverunum hafa prestar kirkjunnar, sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr. Stefanía G. Steinsdóttir.