Kvenfélagið Baldursbrá

Kvenfélagið Baldursbrá var stofnað í Glæsibæjarhreppi árið 1919 til að hjálpa veikum og fátækum. Þá var lítið um sjúkrahúsvistir jafnvel fyrir dauðvona fólk. Það dó bara heima en þurfti náttúrlega umönnun í banalegunni sem og öðrum veikindum. Félagið vildi því fá hjúkrunarkonu til að sinna sjúklingum og kostaði því unga stúlku á þriggja mánaða námskeið á sjúkrahúsi. Vann hún síðan hjá félaginu nokkur ár. Einnig gaf félagið peninga þar sem veikindi og önnur óhöpp hentu hreppsbúa.

Á sjöunda áratugnum var félagið komið í lægð og ástæðan var verkefnaskortur, sjúkrahús tóku við sjúkum, sjúkratryggingar komnar til sögunnar og atvinnuöryggi allt annað en var. Þá fóru félagskonur að tala um að finna sér eitthvert viðbótar verkefni til að vinna að. Var þá verið að byggja Sólborg og fannst mörgum það verðugt verkefni. En kirkjan var konunum einnig hugleikin. Júdith Sveinsdóttir sagði að á sóknarnefndarfundi hefði komið fram að mikil þörf væri á að byggja kirkju í hverfinu og stakk hún upp að styrkja það verkefni. Var samþykkt að styrkja bæði þessi málefni. Þar sem kirkjubygging var ekki í sjónmáli varð Sólborgarverkefnið á undan en frá því að Glerárprestakall var stofnað hefur félagið starfað fyrir kirkjuna. Baldursbrá hefur þó ekki gleymt sínu gamla hlutverki og í lögum félagsins stendur: "Markmið félagsins er að vinna að mannúðarmálum á félagssvæðinu, ef sérstakir erfiðleikar steðja að heimilum í Glerárhverfi skal ganga fyrir að rétta þar hjálparhönd." En aðalstarfið er þó vinnan fyrir kirkjuna og þar hefur félagið aðstöðu til starfseminnar. Félagslífið í Baldursbrá hefur alltaf verið með miklum blóma. Félagið hefur boðið upp á margs konar námskeið og félagskonurnar hafa aðstöðu til að föndra saman í kirkjunni þegar áhugi er fyrir hendi. Þar eru einnig fundir félagsins. Reynt er að fara í ferðalag á hverju ári og halda árshátíð. Eru þá mennirnir að sjálfsögðu boðnir með.

Það eru haldnir basarar og bingó og selt kaffi 17, júní. Fermingarkyrtlarnir eru þvegnir og straujaðir af félagskonum.

Minningakort félagsins eru seld í Glerárkirkju, og í  í Lindasíðu 33 hjá Guðrúnu Sigurðardóttur.

Fundir eru einu sinni í mánuði, þriðja hvern fimmtudag kl. 19:30 (súpa og brauð) í sal niðri gengið inn að austan. Önnur fimmtudagskvöld mánaðarins koma konur saman í sama sal með handavinnu sína frá kl. 19-21. Allar konur eru velkomnar og upplagt fyrir þær sem að vilja kynna sér starf félagsins að koma þá.
Síðasti fundur vetrarins er skemmtifundur og er þá farið á einhvern veitingastað í nágrenninu og keyptar einhverjar veitingar.

Formaður er: Kristín Þorsteinsdóttir sími 462-4975  895-7972

Nánar má fræðast um sögu félagsins í bók Guðrúnar Sigurðardóttur ,,Kvenfélagið Baldursbrá" - bókin er til sölu hjá félaginu, og í Glerárkirkju.

Sjá einnig á Facebook síðu félagsins.