Fréttir

Sumarnámskeið í Glerárkirkju.

Í boði eru þrjú sjálfstæð námskeið fyrir börn í 1.-3. bekk með spennandi dagskrá. Bæjarferð, íþróttadagur, náttúrudagur, grill og mart fleira. Námskeiðin eru frá 09:00 - 15:00 og námskeiðsgjalið 6000 kr. fyrir hvert barn.

Sunnudagur 3. júní - sjómannadagurinn

Messa kl. 11:00 Sr. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots. Að lokinni athöfn verður stutt hugleiðing við minnismerki um týnda og drukknaða sjómenn. Sjómenn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæsta í athöfnina.

Sunnudagurinn 27. maí.

Messa í Lögmannshlíðarkirkju kl. 14:00. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista. Allir vekomnir.

Laugardagurinn 26. maí.

Fermingarmessa kl. 13.30. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Stefanía G. Steinsdóttir þjóna. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista.

Sunnudagur 20. maí - Hvítasunnudagur.

Hátíðarmessa kl. 11:00 Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organista. Allir velkomnir.

Sunnudagur 13. maí - Vorhátíð fjölskyldunnar.

Fjölskylduguðþjónusta kl. 11:00. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir og Sunna Kristrún djákni leiða stundina. Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Margrétar Árnadóttur. Allir velkomnir. Mannakornsguðþjónusta kl. 20:00. Krossbandið spilar byrjar kl: 19:45. Sr. Stefanía leiðir stundina. Notaleg stund.

Fimmtudagur 10. maí - uppstigningardagur - dagur eldriborgara.

Messa kl. 14:00. Sr. Gunnlaugur Garðarson þjónar og sr. Stefanía G. Steinsdóttir predikar. Karlakór Akureyrar-Geysir syngur. Eldri borgarar sérstaklega boðnir velkomnir. Kaffiveitingar að messu lokinni. Allir hjartanlega velkomnir.

Sunnudagur 6. maí

Messa og sunnudagaskóli. Sameiginlegt upphaf í messu. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng unir stjórn Valamar Väljaots orgnaista. Umsjón með sunnudagaskóla Sunna Kristrún djákni og leiðtogar. Allir velkomnir.

Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar 2018.

Aðalsafnaðrfundur Lögmannshlíðarsóknar 2018 verður haldin í safnaðarsal Glerárkirkju sunnudaginn 6. maí kl: 12:30 Allir sem búa innan sóknarinnar og eru meðlimir í Þóðkirkjunni eru hvattir til að mæta á fundinn.

Fermingarmyndirnar eru tilbúnar.

Myndir af fermingarbörnum sem teknar voru í Glerárkirkju vegna fermingar þann 7. og 8. apríl og 14. og 15 apríl eru komnar í hús. Þið getið vitjað þeirra hjá umsjónarmanni (Hauki) en hann er við í Glerarkirkju alla jafna frá 11. til 16 virka daga.