Fréttir

Frí í Glerárkirkju um verslunarmannahelgina

Glerárkirkja gefur starfsfólki sínu frí um verslunarmannahelgina. Næsta messa verður sunnudaginn 10. ágúst kl. 20:30

Kvöldmessa með keltnesku ívafi sunnudaginn 27. júlí

Næsta sunnudagskvöld, 27. júlí kl. 20:30 verður írsk stemning í kvöldmessu. Meðlimir úr hljómsveitinni PKK sem leikur aðallega írska þjóðlagatónlist heiðra okkur með nærveru sinni ásamt söngkonunni Marínu Ósk. Sr. Arna Ýrr þjónar og boðið verður upp á kaffi og með því í safnaðarheimilinu eftir messu. Allir eru velkomnir.

Hjól í óskilum

Þetta hjól lá í reiðileysi á planinu við kirkjuna um daginn og hefur verið hér í fóstri síðan. Það vill gjarnan komast heim til sín!

Kvöldmessa í Glerárkirkju sunnudaginn 13. júlí

Kvöldmessa kl. 20:30. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Allir velkomnir.

Nýr prestur við Glerárkirkju

Séra Jón Ómar Gunnarsson hefur verið skipaður prestur við Glerárkirkju frá og með 1. september nk. Jón Ómar er fæddur 15. september 1982. Hann er kvæntur Berglindi Ólöfu Sigurvinsdóttur, og á soninn Sigurvin Elí. Við bjóðum Jón Ómar velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins!

Nýr djákni við Glerárkirkju!

Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin djákni við Glerárkirkju frá og með 1. ágúst nk. Sunna Kristrún er fædd 21. mars árið 1981. Hún er gift Elíasi Inga Björgvinssyni og þau eiga tvo syni, Gunnlaug Davíð og Eyjólf Jökul. Við bjóðum Sunnu Kristrúnu velkomna og hlökkum til samstarfsins við hana.