Fréttir

Sunnudagur 4. mars. Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunar.

Fjölskylduguðþjónusta kl. 11:00. Ungmenni Kirkjunnar verða með framlag. Barna og-Æskulýðskór Glerárkirkju ásamt söngfuglunum syngja í umsjón Margrétar Árnadóttur kórstjóra. Sr. Stefanía Guðlaug Steinsdóttir og Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir djákni þjóna. Ungir og gamlir hvattir til að mæta.

Sunnudagur 25. febrúar.

Sunnudagaskóli kl. 11:00. Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir djákni. Kvöldmessa kl. 20:00. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjón Valmars Väljaots organleikara. Allir Velkomnir.

Sunnudagur 18. febrúar.

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sr. Stefanía G. Steinsdóttir þjónar. Sameiginlegt upphaf í messu. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organleikara. Umsjón með sunnudagaskóla: Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir djákni. Allir velkomnir.

Fræðslu- og umræðukvöld um umhverfismál á miðvikudögum kl. 20

Fyrsta fræðslukvöldið á þessu misseri er núna á miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20. Staða umhverfismála á Akureyri er uppistöðu erindi kvöldsins, hvar erum við sem samfélag og hvert erum við að fara. Það er nú ekki langt síðan Glerá var gul, rauð, græn eða blá eftir því hvernig efni var verið að vinna með í verksmiðjunum, við höfum breytt hugsun okkar og umgengni hratt á undanförnum árum.

Fimmtudagur 15. febrúar

Samvera eldri borgara verður fimmtudaginn 15. febrúar kl. 15:00. Gestur fundarinns verður Arngrímur Jóhannsson flugmaður og fyrverandi eigandi Atlanda flugfélagsins Sætaferðir verða frá Lindarsíðu og Lögmannshlíð. Allir velkomnir.

Sunnudagur 11. febrúar.

Messa og sunnudagaskóli kl 11:00 Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Sameiginlegt upphaf í messu. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots organleikara. Umsjón með sunnudagskóla: Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir djákni. Allir velkomnir.

Kyrrðardagur verður í Glerárkirkju laugardaginn 10. febrúar kl. 10-17.

Kyrrðardagar höfða til margra sem vilja stíga út úr skarkala hversdagsins og leita þess að styrkja samband sitt við Guð í kyrrð. Verð: 2000 kr. Skráning í síðasta lagi fyrir fimmtudaginn 8. febrúar í síma 897 3302 eða gudmundur.gudmundsson@kirkjan.is.