Dagskrá Glerárkirkju í nóvember 2026
01.11.2026
Nóvember er fjölbreyttur í Glerárkirkju og margt á dagskrá fyrir fólk á öllum aldri.
Auk hefðbundins kirkjustarfs verða meðal annars fjölskyldumessa, feðradagsmessa, prjónamessa og messa á allra heilagra messu þar sem við minnumst þeirra sem við höfum kvatt.
Í lok mánaðarins mun Sorgarmiðstöðin vera með erindi um sorg og jól, Gospelkór Glerárkirkju heldur jólatónleika og aðventunni verður fagnað með aðventukvöldi kirkjunnar.
Fastir liðir eru einnig á sínum stað, meðal annars kóræfingar, foreldramorgnar, prjónakaffi og fjölbreytt barna- og unglingastarf.
Verið hjartanlega velkomin í Glerárkirkju!