Fréttir

Prédikun á nýársdegi

Hjá okkur sem stöndum á bryggjunni í dag, eru tilfinningarnar varðandi sjóferðina sem framundan er væntanlega blendnar. Í gærkvöld komum við að bryggju að lokinni sjóferð í gegnum árið 2011. Úr prédikun sem undirritaður flutti í dag í messu í Glerárkirkju. Áhugasamir geta lesið hana á trú.is.

Áramótakrossgáta Glerárkirkju

13 ungmenni hafa starfað í Glerárkirkju sem sjálfboðaliðar í 6 mánuði eða lengur hvert þeirra. Þau eiga það sameiginlegt að hafa ákveðið að taka sér hlé frá námi eða vinnu í heimalandinu og gefa Glerárkirkju nokkra mánuði í sjálfboðnu starfi. Áhrif þeirra á starfið eru örugglega meiri en við áttum okkur á. Nú þegar matsfundur um starf sjálfboðaliðanna er framundan er við hæfi að bjóða upp á áramótakrossgátu hér á vefnum þar sem verkefnið er að skrifa nöfn allra þrettán ungmennanna inn í krossgátuna. Góða skemmtun. Krossgáta til útprentunar - Kíkja á upplýsingasíðu þar sem nöfnin er að finna.

Æskulýðsstarf Glerárkirkju fær styrk frá Evrópu Unga Fólksins

Þann 18. febrúar næstkomandi er von á flestum fyrrverandi EVS sjálfboðaliðum Glerárkirkju ásamt fulltrúum sendisamtaka þeirra til fundar í Glerárkirkju. Allt frá árinu 2006 hefur æskulýðsstarf Glerárkirkju verið virkt sem svonefnd móttökusamtök fyrir sjálfboðaliða. Og nú er komið að því að meta verkefnið og spyrja hvernig hafi tekist til og hvað megi gera betur. Þær rúmu tvær milljónir sem kirkjan fær til verkefnisins munu koma þar að góðum notum.

Samherji styrkir æskulýðsstarf Glerárkirkju

Samherji hf. boðaði til móttöku síðdegis í dag í KA-heimilinu á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á 75 milljónir króna. Þar af fékk æskulýðsstarf Glerárkirkju eina milljón króna. Við í Glerárkirkju þökkum kærlega fyrir okkur. Sjá nánar í frétt á vikudagur.is.

Áætlun um helgihald í Glerárkirkju árið 2012

Hér á vefnum má nálgast áætlun um helgihald í Glerárkirkju 2012 - birt með fyrirvara um breytingar.

Fermingar 2013

Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að fólk vilji vera tímanlega í því að undirbúa fermingardagana. Til þess að koma til móts við þær fjölskyldur höfum við í Glerárkirkju nú um árabil birt upplýsingar um fermingardagana í Glerárkirkju með rúmlega árs fyrirvara. Hér koma upplýsingar um fermingar í Glerárkirkju árið 2013.

Helgihald í Glerárkirkju um jól og áramót

Helgihald í Glerárkirkju um jól og áramót     31. desember - Gamlársdagur  Kl. 18:00 - Aftansöngur Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, þjónar. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja undir stjórn Valmars Väljaots.  1. janúar 2012 - Nýársdagur  Kl. 14:00 - Hátíðarmessa Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni, predikar. Félagar úr Kór Glerárkirkju syngja undir stjórn Valmars Väljaots.  Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd Glerárkirkju óska bæjarbúum gleðilegra jóla og Guðs blessunar á nýju ári.

Fjársjóður hjartans

Skálholtsútgáfan hefur gefið út litla fjársjóðskistu. Þetta eru bænir og biblíuvers í önnum hversdagsins á 84 kortum – öðrum megin er biblíuvers sem auðvelt er að tileinka sér, hinum megin er bæn. Nafið Fjársjóður er tilvísun til ritningarversins: Hvar sem fjársjóður þinn er þar mun og hjarta þitt vera.

Kristur kemur

"Sjá, mærin mun þunguð verða og son ala. Nafn hans mun vera Immanúel". Það þýðir: Guð er með oss. (Matt.1:23) Hér á eftir má lesa aðventuhugleiðingu sr. Gunnlaugs Garðarssonar, sóknarprests úr safnaðarblaði desembermánaðar.

Jólakortasýning

Á aðventu 2011 er jólakortasýning í anddyri Glerárkirkju. Þar eru til sýnis kort úr tveimur einkasöfnum, annars vegar úr safni Gerðar Pálsdóttur, húsmæðrakennara, sem í dag er búsett á Hrafnagili og hins vegar úr safni Björns Guðmundssonar (1919-2011). Aðeins brotabrot af söfnunum eru til sýnis í kirkjunni og er hér með komið á framfæri þakklæti til Gerðar annars vegar og fjölskyldu Björns hins vegar fyrir að lána kort til sýningarinnar.