18.11.2014			
	
	Sr. Sigurður Ægisson, sóknarprestur á Siglufirði, fjallar um Bréf Jakobs, Péturs postula og Hebreabréfið ? Jakobsbréfið: Kristin trú í verki á næsta færðslukvöldi í Glerárkirkju miðvikudaginn 19. nóvember kl. 20-22. Allir hjartanlega velkomnir að hlusta á erindið og taka þátt í umræðu um efnið.
 
	
		
		
		
			
					13.11.2014			
	
	Barnastarf og messa kl. 11:00  Sameiginlegt upphaf í messu.  Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng undir stjórn Valmar Väljaots.  Kvöldguðsþjónusta kl. 20:30  Krossbandið leiðir almennan söng.  Allir velkomnir.
 
	
		
		
		
			
					11.11.2014			
	
	Sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, mun fjalla um bréf Páls postula á fræðslukvöldi í Glerárkirkju nk. miðvikudag 12. nóvember kl. 20. Erindið nefnir hann: Bréf Páls postula. Galatabréfið um frelsi kristins manns. Hann mun fjalla um guðfræði Páls sem hann telur að snúist um frelsið. Það er slagorð nútímans og mun hann bera saman hugmyndir Páls við ólíkar skoðanir um frelsi.
 
	
		
		
		
			
					03.11.2014			
	
	Sr. Hildur Sigurðardóttir, prestur og húsfreyja á Skinnastað, fjallar um Postulasöguna á næsta fræðslukvöldi í Glerárkirkju miðvikudaginn 5. nóvember kl. 20. Erindið nefnir hún: Saga frumkirkjunnar og boðskapur hennar. Í október var fjallað um guðspjöllin en með þessu erindi hefst seinni hlutinn um útbreiðslu kristninnar og bréfin sem voru skrifuð til fyrstu kristnu safnaðanna.
 
	
		
		
		
			
					30.10.2014			
	
	Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00  Barna- og Æskulýðskór Glerárkirkju syngur.  Kvöldmessa kl. 20:30 Kór Glerárkirkju leiðir almennan söng.  Allir velkomnir.
 
	
		
		
		
			
					27.10.2014			
	
	Sr. Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur í Glerárkirkju, mun fjalla um Jóhannesarguðspjall á næsta fræðslukvöldi miðvikudaginn 29. október kl. 20. Guðspjall Jóhannesar er ólíkt hinum og verður í erindinu fjallað um það. Þá er boðskapur þess um að orðið sem varð hold rakinn til hugmynda samtímans en einnig sem einkenni kristinnar trúar.
 
	
		
		
		
			
					23.10.2014			
	
	Barnastarf og messa kl. 11.00  Sameiginlegt upphaf í messu.  Prestur sr. Guðmundur Guðmundsson.  Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots.  Allir velkomnir.
 
	
		
		
		
			
					24.10.2014
						
	
	Landsmót æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar verður þann 24. - 26. október á Hvammstanga og munu 22 unglingar úr UD Glerá taka þátt. Brottför verður kl. 14:00 frá Glerárkirkju. Á vefsíðu mótsins www.aeskth.is eru allar nauðsynlegar upplýsingar, einnig verður hægt að fylgjast með mótinu á facebook.com/landsmot.