Fréttir

Fermingarmessa í Lögmannshlíðarkirkju

Fermingarmessa verður í Lögmannshlíðarkirkju sunnudaginn 22. júní kl. 11.00. Prestur er sr. Gunnlaugur Garðarsson. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots.

Kvöldmessa í Glerárkirkju sunnudaginn 15. júní kl. 20.30

Kvöldmessa verður í Glerárkirkju sunnudaginn 15. júní kl. 20.30. Prestur sr. Gunnlaugur Garðarsson. Kór Glerárkirkju leiðir söngu undir stjórn Valmar Väljaots.

Glerárkirkja auglýsir eftir kirkjuverði.

Glerárkirkja auglýsir eftir kirkjuverði í 80% starfshlutfall. Starf kirkjuvarðar felur í sér umsjón Kirkjunnar í tengslum við allt helgihald sem þar fer fram og öllum búnaði sem því tengist. Staðan veitist frá 1. ágúst næstkomandi en umsóknarfrestur er til þriðjudagsins 24.júní. Upplýsingar um starfið veitir sóknarprestur.

Sunnudagurinn 8. júní. Hvítasunnudagur

Messa verður á Hvítasunnudag 8. júní kl: 11.00 Prestur er sr. Gunnlaugur Garðarsson. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjór Valamr Väljaots.

Laugardagurinn 31. maí Fermingarmessa kl. 13:30

Fermingarmessa verður í Glerárkirkju laugardaginn 31. maí kl. 13.30 Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar ásamt Ragnheiði Sverrisdóttur, djákna. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots.

Fimmtudagurinn 29. maí. Uppstigningardagur. Dagur aldraða. Messa kl. 14

Karlakór Akureyrar-Geysir syngur undir sjórn Hjörleifs Arnars Jónssonar. Organisti Valmar Väljaots. Sr. Haukur Ágústsson prédikar. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Eldriborgarar séstaklega boðnir velkomnir. Kaffiveitingar að messu lokinni.

Síðasta miðvikudagsmessan 28. maí

Á hverju miðvikudegi í vetur hefur um 20 manna hópur komið saman í Glerárkirkju. Þó helgihaldið byrji ekki fyrr en kl. 12 eru margir komnir snemma til að fá sér molasopa og spjall. Í kirkjunni eru fyrirbænir, altarissakramenti og söngur. Á eftir er súpa, brauð og ávextir og stundum terta. Á morgun er síðasta messa vetrarins og allir velkomnir eins og ævinlega.

Fermingarmessa í Lögmannshlíðarkirkju sunnudaginn 25. maí kl. 14.00

Fermingarmessa verður í Lögmannshlíðarkirkju sunnudaginn 25. maí kl. 14.00 Prestur: Sr Gunnlaugur Garðarsson. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmar Väljaots.

Messa í Glerárkirkju sunnudaginn 18. maí kl 11

Messa verður í Glerárkirkju sunnudaginn 18. maí kl. 11.00 Prestur sr. Gunnlaugur Garðarsson. Félagar úr Kór eldirborgara syngja og leiða söng.

Aðalfundur Kórs Glerárkirkju 22 maí kl. 20.00

Aðalfundur Kórs Glerárkirkju 22.maí 2014 kl. 20.00 Dagskrá 1. Fundur settur 2. Kosning fundarstjóra og ritara 3. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin 4. Skýrsla formanns 5. Skýrsla gjaldkera, ársreikningar lagðir fram. 6. Kosning stjórnar og varamanna 7. Kosning raddstjóra, nótnavarða og skoðunarmanna reikninga 8. Kaffihlé 9. Önnur mál.