Fréttir

Helgihald sunnudaginn 30. september

Messað verður í Glerárkirkju sunnudaginn 30. september kl. 11:00. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Valmars Väljaots. Barnastarf á sama tíma í safnaðarsal. Sameiginlegt upphaf í messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Ágúst Þór Árnason ræðir um stjórnarskrá, gildismat og trú

Í dag er samvera eldri borgara í Glerárkirkju. Þar ræðir Ágúst Þór Árnason um stjórnarskrá, gildismat og trú. Samveran hefst með söng og helgistund. Boðið er upp á kaffihlaðborð á vægu verði að hætti Rósu. Að venju eru rútuferðir frá Lindasíðu kl. 14:45. Reiknað er með að samverunni ljúki um hálf fimmleytið. Allir hjartanlega velkomnir.

Starfsfólk og kórfélagar á eldvarnarnámskeiði

Starfsfólk Glerárkirkju og fulltrúar frá Kór Glerárkirkju sóttu í gær eldvarnarnámskeið hjá Birni H. Sigurbjarnarsyni, aðstoðarslökkviliðsstjóra á Akureyri. Námskeiðið er liður í símenntun og þjálfun þeirra sem koma að starfinu í Glerárkirkju. Farið var yfir helstu lög og reglur varðandi eldvarnir og benti Björn á ýmsa mikilvæga þætti varðandi rýmingu húsnæðis, útgönguleiðir, staðsetningu slökkvitækja, neyðarlýsingu og útlýsingu. Þá fengu þátttakendur kynningu á helstu gerðum slökkvitækja og tækifæri til að prufa þær allar. Síðasta mál á dagskrá var svo æfing í notkun á eldvarnarteppi.

Með börnin til tannlæknis fyrir áramót

Þegar sólin skín og við njótum sumartímans þá fara sumar fréttir fram hjá okkur. Ein gleðifrétt sumarsins snéri að því að Sjúkratryggingar Íslands hækkuðu endurgreiðslugjaldskrá sína fyrir tannlækningar barna um 50%. Hækkunin tók gildi 1. júlí 2012 en hún gildir TÍMABUNDIÐ til næstu áramóta. Áætlað er að með þessu hækki hlutfall endurgreiðslu raunkostnaðar úr tæpum 42% að meðaltali í 62,5%. Þess vegna segjum við í Glerárkirkju við foreldra barna (17 ára og yngri): Drífið ykkur með börnin til tannlæknis fyrir áramót!

Gönguhópur Glerárkirkju á mánudögum

Á mánudögum er boðið upp á gönguhóp í Glerárkirkju. Lagt er af stað frá Glerárkirkju kl. 16:30 og gengið upp í Lögmannshlíðarkirkju. Þar gefst tækifæri til að fá sér heitan drykk en einnig er sest niður í kirkjunni og höfð stutt helgistund. Öll þau sem áhuga hafa eru velkomin í gönguhópinn. Áætlað er að hópurinn sé kominn til baka að Glerárkirkju kl. 18:30. Umsjón með gönguhópnum hafa hjónin Regína B. og Pétur Björgvin Þorsteinsson. Nánari upplýsingar gefur Pétur í síma 864 8451.

Á fyrsta reit

Marína Ósk Þórólfsdóttir sem stjórnar yngri kórum Glerárkirkju er fjölhæf tónlistarkona. Þetta árið kemur hún meðal annars að plötunni "Latínudeildin" þar sem hún syngur lagið "Á fyrsta reit" Okkur hér í Glerárkirkju þykir vænt um að geta bent á þessa plötu um leið og við bendum á Youtube upptöku af laginu sem er vel til þess fallið fyrir foreldra barnanna í kórunum sem og aðra til að kynnast söngkonunni Marínu Ósk aðeins betur.

Vel heppnað námskeið sunnudagaskólaleiðbeinenda

Unga fólkið sem er í framvarðarsveitinni í sunnudagaskólastarfinu í Glerárkirkju sótti í dag, sunnudaginn 23. september, námskeið þar sem Magnea Sverrisdóttir djákni leiðbeindi þeim um ýmsa þætti er snúa að sunnudagaskólastarfinu. Og þar er í mörg horn að líta: Hvernig tökum við á móti krökkunum, hvernig tölum við, hvaða framkomu veljum við, hvað látum við brúðurnar gera og þá hvernig, og svona mætti lengi telja. Námskeiðið er hluti af stærri námskeiðaröð sem Glerárkirkja stendur fyrir að vanda á haustin. Dæmi um önnur námskeið má nefna eldvarnarnámskeið og skyndihjálparnámskeið.

Opinn fundur í tólf spora starfinu

Mánudagskvöldin eru tólf spora kvöld í Glerárkirkju. Þau kvöld hittist hópur fólks í safnaðarheimilinu kl. 19:30 til mannræktar. Þessar vikurnar standa yfir opnir kynningarfundir. Öllum er velkomið að taka þátt í kynningarfundunum án þess að skuldbinda sig nokkuð varðandi frekari þátttöku. Það er hópur sjálfboðaliða sem leiðir starfið í anda þeirrar sjálfshjálparvinnu sem býr að baki hugmyndinni um tólf spora starfið.

Sunnudagssamkoma KFUM og KFUK

Sunnudaginn 23. sept. kl. 20 verður haldin samkoma í félagsheimili KFUM og KFUK Sunnuhlíð. Ræðumaður kvöldsins er sr. Bolli Pétur Bollason en um tónlistina sjá þau Arnar, Sandra, Radek, Helgi og Jóhann. Að samkomu lokinni verður boðið upp á kaffisopa. Komið og njótið þess að eiga saman notalega og uppbyggilega kvöldstund í samfélagi bræðra og systra í Kristi.

Unglingastarfið á Facebook

UD-Glerá er heitið á unglingastarfi vetrarins sem er samstarfsverkefni KFUM og KFUK og Glerárkirkju. Aðsóknin á fyrstu tvo fundina hefur verið vægast sagt mjög góð og hlökkum við til að starfa með frábæru teymi unglinga í vetur. Umsjón með starfinu hafa Jóhann H. Þorsteins og Pétur Björgvin. Dagskráin fer fram á fimmtudagskvöldum í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð. Húsið opnar kl. 19:30. Myndir frá starfinu eru aðgengilegar á Facebook síðu UD-Glerá.