Fréttir

Óskilamunir í Glerárkirkju

Að vanda hefur nokkuð safnast af óskilamunum í Glerárkirkju í vetur, húfur, vettlingar, peysur, reiðhjólahjálmar og jafnvel buxur. Þeim sem grunar að þau gætu hafa gleymt einhverju í kirkjunni í vetur er bent á að hægt er að nálgast óskilamuni í kringum viðburði í kirkjunni sem og á opnunartíma virka daga milli 11:00 og 15:00. Þann 20. maí verða ósóttir óskilamunir svo gefnir til Hjálpræðishersins. Fermingarbörn sem enn eiga eftir að sækja vinnubækur sínar eru hvött til að gera það á næstu dögum, en prestar kirkjunnar munu hins vegar koma í heimsókn í bekki með myndir úr fermingarathöfnunum í næstu viku.

Undirbúningur fyrir landsmót æskulýðsfélaga 2011 hafinn

Næsta landsmót æskulýðsfélaga verður síðustu helgina í október á Selfossi - að sjálfsögðu verður æskulýðsstarf Glerárkirkju á staðnum!

Aðalsafnaðarfundur sunnudaginn 22. maí

Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn sunnudaginn 22. maí næstkomandi að lokinni messu. Messan hefst kl. 11:00. Á aðalsafnaðarfundi er gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári, reikningar afgreiddir og kosið í sóknarnefnd til 4ra ára. Allir eru velkomnir á aðalsafnaðarfund.

Hollráð til hamingju - lærum að spara

Rauði Kross Íslands - Akureyrardeild í samstarfi við Vinnumálastofnun stendur fyrir fræðslufundi í Lundarskóla miðvikudaginn 11. maí kl. 20:00. Þar mun Lára Ómarsdóttir segja frá sinni persónulegu reynslu og gefa kreppuráð sem margir geta nýtt sér. Það eru allir velkomnir og aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis.

Myndir frá vorhátíð Glerárkirkju

Vorhátíð Glerárkirkju var haldin hátíðleg sunnudaginn 8. maí síðastliðinn. Hér á síðunni má nú skoða nokkrar myndir frá vorhátíðinni. Skoða myndir.

Hvaða máli skiptir einn sykurmoli

Í pistli dagsins á trú.is segir m.a.: Hann er trúr í hinu smæsta. Af því að honum hefur verið kennt það. Af því að trú hans er slík. Af því að hann vill vera heiðarlegur. Í pistlinum er eitt atriði úr kvikmyndinni ,,Children of Heaven" skoðað lítillega, en myndin er til sýnis á Kirkjulistaviku Akureyrarkirkju í kvöld kl. 20:00 í safnaðarheimili Akureyrarkirkju. Lesa pistil á trú.is - Skoða dagskrá Kirkjulistaviku Akureyrarkirkju

Hárið - kvöldguðsþjónusta í Glerárkirkju á sunnudaginn

Í kvöldguðsþjónustu 8. maí kl. 20:30 verður þema stundarinnar söngleikurinn Hárið. Þar er hippatímabilið í fókus, friðarboðskapur og áhersla á kærleika og fegurð. Krossbandið mun flytja lög úr söngleiknum í íslenskri þýðingu Davíðs Þórs Jónssonar og fjallað verður um söngleikinn í máli og myndum, og hvernig hann tengist kristnum boðskap. Allir eru velkomnir. Lifi ljósið

Vorhátíð Glerárkirkju

SUNNUDAGINN 8. MAÍ FRÁ 11:00 TIL 12:45 er vorhátíð Glerárkirkju. Við hvetjum fjölskyldur, stórar sem smáar, og fólk á öllum aldri til að fjölmenna. Þennan dag fögnum við því líka að foreldramorgnar í Glerárkirkju eru 20 ára - að sjálfsögðu fáum við afmælistertu!

Skátakórinn syngur Tryggvalög

Hvað er hressilegra á fögrum vordegi en að hlusta á skátasöngva sem fjalla um fjöllin blá, fegurð himinsins, gleðina, lífið, sólina, vináttuna? Tækifæri til að njóta slíks er einmitt næstkomandi laugardag, 7. maí kl. 15:00 en þá heldur Skátakórinn tónleika í Glerárkirkju þar sem sungin verða lög eftir Tryggva Þorsteinsson. Auglýsing til útprentunar

Kynslóðir mætast

Í dag laugardaginn 30. apríl fylgir Morgunblaðinu aukablað sem ber titilinn ALDUR. Þar er sagt frá verkefni sem Glerárkirkja hefur komið að í gegnum árin og heitir KYNSLÓÐIR MÆTAST. Upphaflega var þetta verkefni sem sr. Bernharður Guðmundsson stóð fyrir í Skálholti, en hér á Akureyri tóku Glerárkirkja, Menntaskólinn og Hlíð sig saman um að aðlaga verkefnið fyrir nemendur af síðasta ári MA og eldri borgara. Akureyrarkirkja og Eyjafjarðarprófastsdæmi bættust svo í hópinn og hafa stutt verkefnið frá upphafi. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér verkefnið.