Jólaaðstoð 2021

Eins og undanfarin ár verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Þannig er sótt um að hringt er í síma 570 4090 milli kl. 10:00 og 13:00 alla virka daga frá 29. nóvember til 3. desember. Vegna Covid verður tekið viðtal símleiðis um leið og bókaður er tími til að skrifa undir umsóknina og koma með upplýsingar á staðgreiðsluyfirliti sem má nálgast hjá skattinum eða sækja með rafrænum skilríkjum. Aðstoðin er bónuskort og utan Akureyrar Nettókort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli.

Starfið hefst mánudaginn 29. nóvember. Hér með fylgir auglýsing sem birtist í Dagskránni miðvikudaginn 24. nóv. og 1. desember. Framkvæmdin verður með eftirfarandi hætti.


Símaviðtöl:

Eins og auglýst hefur verið þá hringir fólk í síma 570 4090 alla virka daga milli kl. 10-13 frá 29. nóvember til 3. desember. Í símaviðtalinu er fólk beðið um upplýsingar um hagi sína, framfærslu, maka, börn, húsnæði og tekjur á mánuði. Þá er minnt á að það þarf að hafa með sér staðgreiðsluyfirlit við staðfestingu á umsókninni þegar það fær úthlutað tíma um miðjan desember.


Staðfesting umsóknar í Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2, í hliðarsal syðst í húsinu

Svo að sóttvörnum verði fylgt fær fólk tíma til að koma og skrifa undir umsóknina og koma með staðgreiðsluyfirlit. Það verður eftir hádegi í vikunni 13. – 15. desember. Svo ekki verði of margir inni í einu verður að virða tímasetningar sem fólk fær, auk þess að vera með grímur og virða fjarlægðartakmörk. Ástæðan fyrir að óskað er um upplýsingarnar og staðgreiðsluyfirlit er til þess að fjármunir sem safnast nýtist sem best þeim sem þurfa á aðstoðinni að halda.


Úthlutun fer fram samtímis og sama stað í Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2:

Úthlutunin fer fram um leið og fólk kemur með staðgreiðsluyfirlit og skrifar undir umsókn sína. Auk þess fá umsækjendur úttektarkort fyrir föt og jólagjafir hjá Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðishersins, Hrísalundi 1b, sem má nýta samdægurs. Nánari upplýsingar verða gefnar með úttektarkortum.