Fréttir

Sunnudagaskólinn hefst 20. janúar

Krakkar! Lena, Linda, Ragnheiður, Dagný, Svava og Kolbrá hlakka til að hitta ykkur. Brúðuleikhúsið verður á sínum stað, mikill söngur og fjölbreytt dagskrá. Allir fá mynd og stimpil í sunnudagaskólabókina í hvert skipti sem mætt er. Sameiginlegt upphaf í messu safnaðarins áður en gengið er yfir í safnaðarsalinn.

Eldri borgara samvera fimmtudaginn 17. janúar kl. 15

Magnús Aðalbjörnsson er gestur samverunnar og fjallar í máli og myndum um lífið í miðbæ Akureyrar um miðja síðustu öld. Allir velkomnir.

Leyfið börnunum að koma til mín!

Í prédikun sl. sunnudagskvöld segir sr. Arna m.a.: ,, Börn eru líka fólk. Við eigum m.a.s. að taka börnin okkur til fyrirmyndar. Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma... Sakleysið, varnarleysið, traustið, þetta eru gildi Guðsríkisins. Þetta er það sem við eigum að meta mest í lífinu, og gæta sem best að. Við eigum að hlúa að varnarleysinu, við eigum að verja sakleysið og við eigum að treysta. Guði... En getum við treyst hvert öðru ? "

Fermingarfræðslan hefst 22.janúar með þemaviku

Fermingarfræðslan í Glerárkirkju á vorönn hefst með þemaviku fermingarbarna þriðjudaginn 22. janúar og mæta ungmennin þá vikuna í fermingarfræðslu skv. stundaskrá. Í heimsókn hjá okkur verður 18 manna hópur frá Bandaríkjunum og Kanada. Fjölbreytt dagskrá vikunnar er kynnt hér á glerarkirkja.is. Boðið er upp á fjölbreytt hópastarf til viðbótar við fermingarfræðslutímana og eru foreldrar hvattir til að kynna sér dagskrána og hvetja börnin til þátttöku. Þemavikan endar með virkri þátttöku fermingarbarna í messu safnaðarsins sunnudaginn 27. janúar kl. 11:00. Umsjón með þemavikunni hefur djákni Glerárkirkju, Pétur Björgvin og gefur hann nánari upplýsingar í síma 864 8451.

Krossbandið og sr. Arna í kvöldmessu

Sunnudaginn 13. janúar 2012 er kvöldmessa í Glerárkirkju kl. 20:00. Þar sér Krossbandið um tónlistina og meðal annars munu þau Snorri, Ragga og Stefán flytja nokkur lög eftir Bergþóru Árnadóttur. Prestur er sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Allir velkomnir.

Sandur á svellið

Í sumar mun fríður hópur ungmenna úr UD-Glerá sem er sameiginlegt unglingastarf KFUM og KFUK og Glerárkirkju taka þátt í Evrópuhátið KFUM og KFUK sem verður haldin í Prag í Tékklandi. Að sjálfsögðu eru krakkarnir dugleg við fjáröflun því að svona ferð kostar sitt. Þessa dagana ganga þau í hús og selja sand í fötum og hefur sumum þeirra bara gengið nokkuð vel, því að víða er hált. Við hvetjum fólk til að taka krökkunum vel.

Vantar gistingu fyrir 10 manns

Framundan er þemavika fermingarbarna í Glerárkirkju. Til að gera vikuna sem skemmtilegasta hefur Glerárkirkja fengið til liðs við sig 18 manna hóp fólks milli tvítugs og þrítugs sem sækir biblíuskóla á vegum Youth with a Mission, en þau eru nú stödd í Íslandi í starfsþjálfun. Hópurinn mun dvelja á Akureyri frá mánudeginum 21. janúar til og með sunnudagsins 27. janúar. Enn vantar gistipláss fyrir 10 af 18, en leitað er eftir gestgjöfum sem geta boðið upp á rúm (má vera sófi á holi eða í stofu, jafnvel dýna á gólfi) og gefið viðkomandi morgunmat. Allar aðrar máltíðir verða sameiginlegar í kirkjunni fyrir hópinn. Nánari upplýsingar gefur Pétur Björgvin í síma 864 8451 eða á netfangið petur[hjá]glerarkirkja.is.

Ljósmynda- og handverkssýning

Þessa dagana stendur yfir sýning á verkum handverkskonunnar og ljósmyndanemans Díönu Bryndísar í Glerárkirkju. Díana Bryndís, einnig þekkt sem Mamma Dreki, leggur stund á nám í ljósmyndun við New York Institute of Photography en er búsett í dag ásamt fjölskyldu sinni norðan ár á Akureyri. Sýning hennar var opnuð á afmælishátíð Glerárkirkju í desember og stendur sýningin fram í febrúar. Sýningin er opin alla virka daga frá 11:00 til 16:00 sem og þegar viðburðir eru í kirkjunni.

Foreldramorgnar hefjast aftur þriðjudaginn 15. janúar

Foreldramorgnar hefjast aftur þriðjudaginn 15. janúar 2013. Þeir verða alla þriðjudaga á vorönn frá kl. 10:00 til 12:00. Umsjón með foreldramorgnunum hefur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Á þessum fyrsta foreldramorgni verður skyndihjálparfræðsla á dagskránni og hvetjum við foreldra ungra barna til að fjölmenna.

Drög að dagskrá vorannar

Hér á vef kirkjunnar má nú nálgast pdf-skjal sem inniheldur drög að dagskrá helgihalds á vorönn í Glerárkirkju og er dagskráin birt með fyrirvara um breytingar/prentvillur.