Fermingarfræðslan hefst 22.janúar með þemaviku

Fermingarfræðslan í Glerárkirkju á vorönn hefst með þemaviku fermingarbarna þriðjudaginn 22. janúar og mæta ungmennin þá vikuna í fermingarfræðslu skv. stundaskrá. Í heimsókn hjá okkur verður 18 manna hópur frá Bandaríkjunum og Kanada. Fjölbreytt dagskrá vikunnar er kynnt hér á glerarkirkja.is. Boðið er upp á fjölbreytt hópastarf til viðbótar við fermingarfræðslutímana og eru foreldrar hvattir til að kynna sér dagskrána og hvetja börnin til þátttöku. Þemavikan endar með virkri þátttöku fermingarbarna í messu safnaðarsins sunnudaginn 27. janúar kl. 11:00. Umsjón með þemavikunni hefur djákni Glerárkirkju, Pétur Björgvin og gefur hann nánari upplýsingar í síma 864 8451.

Þriðjudagur 22. janúar

Fermingafræðsla skv. stundarskrá

16:30 til 19:00 Fjölbreytt hópastarf, nánar kynnt þegar nær dregur.

Miðvikudagur 23. janúar

Fermingarfræðsla skv. stundarskrá

16:00 til 18:30 Fjölbreytt hópastarf, nánar kynnt þegar nær dregur.

Fimmtudagur 24. janúar

20:00 UD-Glerá, unglingastarf í félagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð, gestirnir sjá um dagskrána.

Föstudagur 25. janúar

16:00 til 19:00 Fjölbreytt hópastarf, nánar kynnt þegar nær dregur. Framhald af hópastarfi þriðjudags og miðvikudags. Pizzuveisla.

20:00 Samkoma þar sem gestirnir sjá um tónlistina og trúarlegan vitnisburð

Sunnudagur 27. janúar

10:00 Mæting fyrir fermingarbörn sem hafa tekið þátt í þemavikunni og tekið að sér hlutverk í messunni.

11:00 Messa með virkri þátttöku fermingarbarna. Gestirnir sjá um tónlistina sem verður aðallega á ensku. Þeim til stuðnings eru fermingarbörn sem einnig sjá um stutt atriði/leikþátt. Foreldrar eru hvattir til að fjölmenna í messuna.

Þátttaka í hópastarfi í þemaviku fermingarbarna er valfrjáls viðbót við fermingarfræðsluna, en þau sem eru skráð í fermingarstörfin í Glerárkirkju mæta að sjálfsögðu öll í venjulega fermingartíma.