Fréttir

Vegur trúarinnar

Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju stendur fyrir samræðukvöldum eins og undanfarin misseri. Tilgangurinn með þeim er að skapa vettvang til samtals um kirkju og kristni og er öllum sem áhuga hafa velkomið að taka þátt í samtalinu. Nánari upplýsingar um samræðukvöldin má finna hér á vef kirkjunnar.

Messa í Glerárkirkju kl. 11 sunnudaginn 29. janúar

Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju leiða almennan söng. Allir velkomnir.  Barnastarf í safnaðarheimili á sama tíma, sameiginlegt upphaf í messu. 

TTT-vinaklúbbur fyrir krakka úr fimmta, sjötta og sjöunda bekk

Krökkum úr fimmta, sjötta og sjöunda bekk stendur til boða að taka þátt í ttt-vinaklúbbnum alla miðvikudaga frá 16:00 til 17:30. Umsjón hafa Anna Dúa, Magnús, Andri, Ragnheiður og Stefanía Tara. Endilega látið sjá ykkur, það er velkomið að prufa. Þátttaka er ókeypis, nema þegar farið er í ferðalög, þá þarf að greiða smá þátttökugjald.

Kirkjuklúbbur fyrir börn úr 1. til 4. bekk

Átt þú barn í fyrsta til fjórða bekk? Tekur það þátt í tómstundastarfi? Eða ertu að leita að stað þar sem barnið þitt getur notið sín, tekið þátt í leikjum, sungið og velt lífinu, tilverunni og Guði fyrir sér? Kynntu þér Kirkjuklúbbinn!

Samkirkjuleg samkoma kl. 20

Í tilefni af alþjóðlegri bænaviku kristinna kirkna er samkoma í kvöld (miðvikudagskvöldið 25. janúar) í Glerárkirkju. Samkoman hefst kl. 20:00. Þar mun Gospelkór Akureyrar syngja og leiða almennan söng undir stjórn Marínu Óskar Þórólfsdóttur og fulltrúar kristinna samfélaga á Akureyri lesa ritningarlestra og bænir. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir, prestur í Glerárkirkju leiðir stundina.

Hádegissamvera

Hádegissamverur á miðvikudögum eru fastur liður í helgihaldinu í Glerárkirkju. Hvern miðvikudag klukkan tólf hittast 20 til 30 manns í kirkjunni til bænagjörðar og altarisgöngu. Allir eru hjartanlega velkomnir.

Þemavika fermingarbarna 2012

Kristilega hljómsveitin Tilviljun? verður ásamt fermingarbörnunum sjálfum í aðalhlutverki í þemaviku fermingarbarna sem hefst þriðjudaginn 25. janúar næstkomandi og endar með fjölbreyttri dagskrá sunnudaginn 5. febrúar. Þátttaka er valfrjáls, en foreldrar eru beðnir að hvetja börn sín til þátttöku. Nánari upplýsingar gefur Pétur Björgvin djákni í síma 864, 8451, en yfirlit yfir dagskrána er að finna hér á síðunni:

Börn úr fyrsta til fimmta bekk velkomin í barnakórinn

Æfingar Barnakórs Glerárkirkju eru alla mánudaga frá 15:45 til 16:45. Öll börn úr fyrsta til fimmta bekk eru velkomin. Mælt er með því að foreldrar komi með á fyrstu æfingu og skrái barnið í kórinn. Kórstjóri er Marína Ósk Þórólfsdóttir, s. 847-7910 ÆFING FELLUR NIÐUR Í DAG VEGNA VEIKINDA.

Messa og barnastarf kl. 11:00 - kvöldguðsþjónusta kl. 20:00

Í dag, sunnudaginn 22. janúar er messa og barnastarf kl. 11:00. Sameiginlegt upphaf í messu. Félagar úr Kór Glerárkirkju leiða almennan safnaðarsöng. Klukkan átta í kvöld er svo kvöldguðþjónusta með Krossbandinu. Prestur í dag er sr. Gunnlaugur Garðarsson.

Jesús segir: Náð mín nægir þér

Æskulýðssamböndin í Austurlandsprófastsdæmi (ÆSKA) og Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi (ÆSKEY) standa í sameiningu fyrir helgarsamveru á Hrafnagili og Akureyri síðustu helgina í febrúar. Gert er ráð fyrir um 100 unglingum af Austur- og Norðurlandi. Unglingarnir eiga það öll sameiginlegt að vera virkir þátttakendur í kirkjustarfinu.  Mótsstjóri er sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur.