Fréttir

Helgihald sunnudaginn 22. maí á Þrenningarhátíð

Sunnudaginn 22. maí verður messa kl. 11 í Glerárkirkju. Sr. Gunnlaugur þjónar og kórinn syngur undir stjórn Valmars. Kl. 20 verður kvöldguðsþjónusta með Krossbandinu. Allir velkomnir.

Tónleikar í Glerárkirkju miðvikudaginn 18. maí

Söngfuglar Glerárkirkju, Barnakór og Æskulýðskór Glerárkirkju halda tónleika þann 18. maí kl. 17. Aðgagnseyrir er 1000 krónur og rennur allur ágóði til Barnadeildar SAk. Allir velkomnir.

Fermingaræfing 13. maí kl. 15

Það verður fermingaræfing föstudaginn næstkomandi kl. 15 vegna fermingar þann 14. maí í Glerárkirkju. Þau ungmenni sem fermast 14. maí eiga að mæta. Á æfingunni á að greiða kirtlagjald kr. 1.200 og gjald vegna ljósmyndar kr. 1.800.

Hátíðarmessa á hvítasunnudegi

Sunnudaginn 15. maí er hvítasunnudagur og þá verður hátíðarmessa kl. 11 í Glerárkirkju. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar, kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots, organista.

Fermingarmessa laugardaginn 14. maí

Laugardaginn 14. maí n.k. verður fermingarmessa kl. 13:30 í Glerárkirkju, fermd verða 13 ungmenni. Sr. Gunnlaugur og sr. Jón Ómar þjóna ásamt meðhjálpurum. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots, tónlistarsnillings.

Uppstigningardagur - Dagur eldri borgara

Uppstigningardagur er dagur eldri borgara í Þjóðkirkjunni og af því tilefni verður messa í Glerárkirkju fimmtudaginn 5. maí kl. 14. Sr. Guðmundur Guðmundsson þjónar, Karlakór Akureyrar - Geysir leiðir almennan söng. Eftir messu býður söfnuðurinn til messukaffis. Allir velkomnir.

Messa og aðalsafnaðarfundur 8. maí.

Sunnudaginn 8. maí verður messa kl. 11. Eftir messu verður aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar í messunni, kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots.

Aðalsafnaðarfundur sunnudaginn 8. maí

Aðalsafnaðarfundur Lögmannshlíðarsóknar verður haldinn sunnudaginn 8. maí næstkomandi að lokinni messu. Messan hefst kl. 11:00. Á aðalsafnaðarfundi er gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári og reikningar afgreiddir. Allir eru velkomnir á aðalsafnaðarfund.

Vorhátíð sunnudaginn 1. maí

orhátíð barnastarfs Glerárkirkju verður haldin sunnudaginn 1. maí næstkomandi og hefst hún með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11:00 þar sem Barna - og Æskulýðskór Glerárkirkju koma fram ásamt Barnakór Langholtskirkju. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Eydís Ösp Eyþórsdóttir, æskulýðsfulltrúi, þjóna við athöfnina.

Sunnudagurinn 24. apríl

Helgihald í Glerárkirkju verður sem hér segir. Messa kl. 11, sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots. Kvöldguðsþjónusta með Krossbandinu kl. 20, sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar.