Fréttir

Fræðlukvöld byrja 3. febrúar um íhugun, bæn og föstu

Margir taka þátt í mannrækt og sjálfshjálparhópum sem iðka ýmis konar andlegar æfingar. Oft leita menn langt yfir skammt því að kjarni kristinnar trúar er bænaiðkun, hugleiðsla og lífsleikni. Á þessu námskeiði verður (1) leiðbeint og æfð bæn eins og Jesús kenndi hana. (2) Gengið í föstu sem er þjálfun í lífsleikni. (3) Kyrrðarbæn kennd og æfð en hún á rætur að rekja til trúariðkunnar í klaustrunum.

Sunnudagurinn 31. janúar

Fjölskylduguðþjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson og Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir, djákni, þjóna. Barna - og æskulýðskór Glerárkirkju syngur undir stjórn Margrétar Árnadóttur. Kvöldmessa kl. 20. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots.

Samkirkjuleg bænavika 18.-25 janúar

Um helgina hefst samkirkjuleg bænavika. Að vanda er farið á milli safnaðanna og beðið saman. Það eru Aðventistar, Hvítasunnukirkjan, Hjálpræðisherinn, Kaþólska kirkjan og Þjóðkirkjan sem standa fyrir þessum samverun á Akureyri. Fimmtudaginn 21. janúar kl. 20 verður svo sameiginleg samkoma hér í Glerárkirkju þar sem Gospelkór Akureyrar og Kór Glerárkirkju syngja og leiða söng.

Ný og spennandi dagskrá hjá UD Glerá

UD - Glerá, æskulýðsfélag Glerárkirkju og KFUM og KFUK, er fyrir unglinga í 8. - 10. bekk. Félagið hittist alla fimmtudaga kl. 20 - 21.30 í Sunnuhlíð, sal KFUM og KFUK (opið hús frá kl. 19:30). Í síðustu viku settu leiðtogar og félagar í æskulýðsfélaginu saman dagskrá fram á vor og verður margt spennandi á dagskrá m.a. kókosbollubrjálæði, pógó - partý, paramót í pílu, páskaeggjabingu og pizzapartý.

Nýtt ár og nóg um að vera í kirkjunni

Gleðilegt nýtt ár, við skulum biðja og vona að það verði sem flestum farsælt og blessunarríkt. Í Glerárkirkju munum við áfram leitast við að bjóða upp á fjölbreytt og lifandi starf fyrir alla aldurshópa. Með starfinu viljum við efla og styðja við mannlífið í hverfinu og miðla trúnni á þann Guð, sem kemur til okkar í Jesú Kristi.

Sunnudagurinn 24. janúar

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar, kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots. Umsjón með sunnudagaskólanum hefur Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir, djákni.

Sunnudagurinn 17. janúar

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson og Aníta Jónsdóttir, meðhjálpari, þjóna, kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots. Umsjón með sunnudagaskólanum hefur Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir, djákni.

Sunnudagurinn 10. janúar

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar, kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Petru B. Pálsdóttur. Umsjón með sunnudagaskólanum hefur Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir, djákni.