Fréttir

Aðventudagatal þjóðkirkjunnar

Upplýsingar um dagskrá í Glerárkirkju á aðventu, um jól og áramót má fá með því að smella á viðkomandi dag í dagatalinu hér til vinstri.

Ekki líta undan - Hádegisstund í safnaðarheimili Glerárkirkju

"Ekki líta undan" Hádegisstund í safnaðarheimili Glerárkirkju með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur og Sigrúnu Sigurðardóttur, hjúkrunarfræðingi. FÖSTUDAGINN 2. DESEMBER KL. 12:00 - 13:30. Fundarstjóri Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni Sr. Hildur Eir Bolladóttir flytur hugvekju Þórhildur Örvarsdóttir flytur nokkur lög Samlokur og kaffi Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Dagskrá átaksins í heild sinni má nálgast sem pdf-skjal á vef Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Sjö óskir

Mér er það heiður að tilheyra þjóðkirkjunni. Ég elska og dái það fólk sem þar starfar, ýmist í launuðu eða ólaunuðu starfi. Það eru forréttindi að fá að finna hvernig hjarta þessa hóps slær fyrir náungann. Einmitt þess vegna ber ég sjö óskir í brjósti. Óskir um þroskamerki. Lesa pistil Péturs Björgvins á trú.is.

Brautryðjandinn Þórhallur Bjarnarson

Velkomin í bókakaffi í Glerárkirkju með höfundi, miðvikudagskvöldið 30. nóvember kl. 20:00. Þar mun höfundur bókarinnar, Óskar Guðmundsson, ræða efni bókarinnar. Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.

Leikhópur fyrir helgileik á II. jóladegi

Börnum úr öðrum til sjöunda bekk grunnskóla er boðið að taka þátt í leikhópi sem æfir fyrir helgileik sem fluttur verður á öðrum jóladegi í fjölskylduguðsþjónustu kl. 13:00. Til umsjónar með hópnum höfum við í Glerárkirkju fengið þær Grétu Kristínu Ómarsdóttur og Rósu Ingibjörgu Tómasdóttur til liðs við okkur.

Jólasöngur frá tímum Oliver Twist

Friðarloginn

Friðarloginn frá Betlehem logar á aðventunni í Glerárkirkju. Landsgildi St. Georgsgildanna á Íslandi og Bandalag íslenskra skáta hafa unnið saman að verkefninu Friðarloginn undanfarin ár. Það sem gerir Friðarlogann sérstakan er sú staðreynd að hann hefur logað óslitið frá því hann var tendraður í fæðingarkirkju Krists í Betlehem. Öllum er velkomið að koma við í Glerárkirkju og fá "afleggjara" af loganum.

Jólakortasýning í Glerárkirkju

Á aðventu 2011 er jólakortasýning í anddyri Glerárkirkju. Þar eru til sýnis kort úr tveimur einkasöfnum, annars vegar úr safni Gerðar Pálsdóttur, húsmæðrakennara, sem í dag er búsett á Hrafnagili og hins vegar úr safni Björns Guðmundssonar (1919-2011). Einnig hafa verið sett upp nokkur veggspjöld með fróðleiksmolum um sögu jólakorta og póstsendinga.

Fjör í farskólanum

Líf og fjör í bland við ábyrgð og alvöru einkenndu síðastliðna helgi á Vestmannsvatni. Þar fór fram farskóli leiðtogaefna. Rúmlega 20 ungmenni af starfsvæði ÆSKA og ÆSKEY sóttu námskeiðið. Í þeirra hópi voru þær Hildur og Svava frá Glerárkirkju. * Lesa frétt á kirkjan.is. * Skoða myndir hér á vefnum.

Helgihald í Glerárkirkju á fyrsta sunnudegi í aðventu

Á sunnudaginn kemur, 27. nóvember hefst aðventan. Í Glerárkirkju verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Þar þjóna sr. Gunnlaugur Garðarsson og Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni. Barna- og æskulýðskórar kirkjunnar leiða söng undir stjórn Marínu Óskar Þórólfsdóttur. Fermingarbörn flytja leikþátt. Að guðsþjónustu lokinni verður opnuð jólakortasýning í anddyri kirkjunnar, þar sem fólki gefst færi á að skoða jólakort frá mismunandi tímum og fræðast um sögu jólapóstsins.  Barnastarfið verður á sínum stað í safnaðarheimilinu, sameiginlegt upphaf í fjölskylduguðsþjónustunni.  Á sunnudagskvöldið verður kvöldmessa kl. 20:00. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar og félagar úr Kór Glerárkirkju leiða almennan söng.