Fréttir

Sunnudagurinn 5. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar verður fjölskyldu-guðsþjónusta kl. 11 og kvöldmessa kl. 20 í Glerárkirkju.

Sunnudagurinn 29. janúar

Sunnudaginn 29. janúar verður helgihald í Glerárkirkju með hefðbundnum hætti, messa og sunnudagaskóli kl. 11.

Sunnudagaskóli og messa 22. janúar

Sunnudagaskóli og messa kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson þjónar og kór Glerárkirkju leiðir almennan söng undir stjórn Valmars Väljaots.

Samvera eldri borgara á fimmtudaginn.

Fimmtudaginn 19. janúar verður samvera eldri borgara í kirkjunni. Gestur samverunnar verður Snorri Guðvarðsson, málarameistari og tónlistarmaður. Umsjón með samverunni hefur sr. Jón Ómar Gunnarsson.

Sunnudagaskóli og messa 15. janúar

Sunnudagaskólinn hefst á ný í Glerárkirkju n.k. sunnudaginn kl. 11. Þá verður einnig messa kl. 11, Jón Ómar Gunnarsson þjónar, kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Valmars Väljaots og Eydís Ösp Eyþórsdóttir leiðir sunnudagaskólann.

Fermingardagar 2017

Hér á síðunni gefur að líta hópaskiptingu vegna ferminga í vor. Alls verða sjö fermingarmessur í Glerárkirkju. Frekari upplýsingar gefa prestarnir.

Sunnudagurinn 11. janúar

Sunnudaginn 11. janúar verður kvöldguðsþjónusta með Krossbandinu. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar.

Fermingarfræðsla hefst 17. janúar

Fermingarfræðslan hefst á ný þriðjudaginn 17. janúar og verður hún með sama hætti og fyrir áramót.

Guðsþjónusta á Þrettándanum

Föstudaginn 6. janúar verður þrettándaguðsþjónusta í Glerárkirkju kl. 18. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Petru B. Pálsdóttur.