Fræðslu- og umræðukvöld um umhverfismál á miðvikudögum kl. 20

Fyrsta fræðslukvöldið er núna á miðvikudaginn 14. febrúar kl. 20.
Staða umhverfismála á Akureyri er uppistöðu erindi kvöldsins, hvar erum við sem samfélag og hvert erum við að fara.
Það er nú ekki langt síðan Glerá var gul, rauð, græn eða blá eftir því hvernig efni var verið að vinna með í verksmiðjunum, við höfum breytt hugsun okkar og umgengni hratt á undanförnum árum.

Sr. Stefanía Steinsdóttir verður með hugvekju um trúna sem drifkraft til þess að gera heiminn að betri stað. Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Vistorku fjallar um stöðu umhverfismála á Akureyri. Sindri Geir Óskarsson, guðfræðingur, kynnir verkefnið Fasta fyrir umhverfið. Allir hjaratanlega velkomnir.

Fasta fyrir umhverfið

Skoða heildardagskrá og dagatalið: Fasta fyrir umhverfið

Í föstudagsþætti N4 var ræddi Karl Eskil Pálsson við Sindra Geir Óskarsson, frumkvöðul að verkefninu Fasta fyrir umhverfinu. Þar kynnir hann hugmyndina og kallar fólk til verka eins og lagt er upp með. Verið með og fastið fyrir umhverfið!