Fermingar 2024

KOmið þið heil og sæl

Skráning í fermingarfræðslu og fermingar í Glerárkirkju vorið 2024 er hafin.

Smellið á fermingardagana hér fyrir neðan og skráningarblað birtist.
Vinsamlegast skráið börnin ekki á marga daga til að "taka frá" pláss.
Hægt er að velja það að skrá þau í fræðsluna en velja dag síðar ef ekki er búið að ákveða dag.

Fermingardagar Glerárkirkju vorið 2024 eru:

Þegar þið skráið barn á dag eruð þið sjálfkrafa að skrá það í fermingarfræðsluna, svo það þarf ekki að skrá það sérstaklega í hana.

Sr. Helga Bragadóttir heldur utan um skráninguna svo þið getið sent tölvupóst á helga@glerarkirkja.is ef það eru einhverjar spurningar.


 

Haustferð-Skráningu lokið

Við byrjum fræðsluna með dagsferð til Dalvíkur laugardaginn 26. ágúst. Þar koma saman fermingarfræðsluhópar af Eyjafjarðarsvæðinu og við eigum góðan dag með leikjum, vinnustofum og fræðslu þar sem sköpun og skemmtun verða í forgrunni. Það er um að gera að taka daginn frá.

Ungmenni úr fermingarárgangnum eru öll velkomin, sama hvort þau ætla að fermast eða ekki.


 

Fermingarfræðslan

Komandi vetur verður fræðslan þannig uppbyggð að þið mætið í 6 skipti fyrir áramót og 6 skipti eftir áramót. Við göngum út frá því að fræðslan verði á þriðjudögum og þrír tímar í boði á hverjum þriðjudegi svo krakkarnir velja þann tíma sem passar þeim best. Við eigum bara einn fermingarvetur svo við vonum að fermingarfræðslan fái að eiga smá forgang í þær vikur sem hún er. Í fræðslunni vinnum við með kristna trú og lífsgildi, hvað það er sem skiptir okkur máli í lífinu, hvernig samfélag við viljum skapa og megin fræðsluefnið okkar er unnið út frá hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Við munum kynnast íhugun og bæn, gömlu góðu biblíusögunum og markmiðið með fermingarfræðslunni er auðvitað að gefa grundvöll til að geta tekið upplýsta ákvörðun þegar það kemur að fermingunni. 

 

Þar sem hópurinn er stór þarf að skrá krakkana á tímasetningu í fræðslunni:

Fermingarfræðsla kl. 14.00: https://www.glerarkirkja.is/is/moya/formbuilder/index/index/fermingarfraedsla-kl-1400

Fermingarfræðsla kl. 15.15: https://www.glerarkirkja.is/is/moya/formbuilder/index/index/fermingarfraedsla-kl-1515

Fermingarfræðsla kl. 16.30: https://www.glerarkirkja.is/is/moya/formbuilder/index/index/fermingarfraedsla-kl-1630

 

Skipulag fræðslu fyrir áramót:
1.-8. okt (fjarfræðsla): Þið fáið sent myndband og vinnið stutt verkefni tengt því í fermingarfræðslubókinni.
10. okt. - Fermingarfræðsla kl. 14:00, 15:15, 16:30
17. okt. - Fermingarfræðsla kl. 14:00, 15:15, 16:30
31. okt. - Fermingarfræðsla kl. 14:00, 15:15, 16:30
7. nóv. - Fermingarfræðsla kl. 14:00, 15:15, 16:30
14. nóv. - Fermingarfræðsla kl. 14:00, 15:15, 16:30
21. nóv. - Fermingarfræðsla kl. 14:00, 15:15, 16:30


Facebook hópur fyrir foreldra og forráðamenn

Við reynum að vera í góðu tölvupóstssambandi við foreldra og forráðamenn yfir veturinn, en það hefur líka reynst vel að nýta Facebook til þess, því hvetjum við ykkur til að finna hópinn „Fermingarhópur Glerárkirkju 2024“ og sækja um aðgang að honum.

Allar upplýsingar um fermingarfræðsluna og fermingarna verður undir hnappinum „Fermingar“ á heimasíðunni okkar, glerarkirkja.is


 Kostnaður - með fyrirvara

Fræðslugjaldið fyrir veturinn er 27.000 kr og fer sá kostnaður í ýmis útgjöld vegna utanumhalds, skipulags og í að fá inn fermingarfræðara sem starfa með prestunum við fræðsluna. Innifalin er myndataka í fermingarathöfninni og leiga/þrifagjald á fermingarkirtli sem rennur til kvenfélagsins.
Ef börn eru bara í fræðslunni en fermast annarsstaðar er fræðslugjaldið 23.000 kr.

Reikningsnúmer og kennitala er
0565-26-1092
450269-2479

Æskilegt er að greiða gjaldið í haust þegar fræðslan hefst, en hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða þá í upphafi hvorrar annar.
Ef það er erfitt að greiða gjaldið vegna einhverra ástæðna er um að gera að heyra í okkur prestunum og við leysum það.


 

Ef það eru einhverjar spurningar eða vangaveltur er hægt að senda póst á helga@glerarkirkja.is