Hæ!
Þetta bréf er sent á ykkur í 2013 árganginum í Glerárþorpi sem skráð eru í þjóðkirkjuna til að kynna fermingarfræðsluna hjá okkur í Glerárkirkju.
Sum ykkar eru búin að taka ákvörðun um það hvort þið ætlið að fermast hér í kirkjunni á næsta ári, önnur eru kannski ekki viss. Það er allt í góðu lagi að taka sér tíma í að velta þessu fyrir sér og það sem meira er þá er allt í lagi að taka þátt í fræðslunni hjá okkur þótt þú sért ekki viss um það hvort þú viljir fermast.
Fermingardagar í Glerárkirkju vorið 2027 eru:
21.mars – pálmasunnudagur kl. 10:30 / 12:30
25.mars – skírdagur kl.10:00 / 12:30
6. maí – uppstigningardagur kl. 10:30 / 12:30
Þið getið farið að velta fyrir ykkur hvaða dagur hentar ykkur best – það er hægt að ferma 22 börn í hverri athöfn svo það munu allir fá þann dag sem þau óska eftir.
Skráning í fermingarfræðslu og á fermingardaga hefst vonandi um miðjan maí eða byrjun júní.
Við erum í viðræðum við Abler um að skráning og utanumhald verði þar.
Upphaf fræðslu – helgarferð í Vatnaskóg 21.-23.ágúst
Við byrjum fræðsluna af krafti með helgarferð í Vatnaskóg þar sem verður fjör og fræðsla frá morgni til kvölds. Staðurinn er algjör paradís, hægt að fara á bátum út á vatnið, það eru hoppukastalar í íþróttahúsinu og fræðslan gefur góðan grunn fyrir það sem við ætlum að gera í vetur.
Þegar nær dregur fáið þið ítarlegri upplýsingar um kostnað og skipulag.
Fermingarfræðslan
Sunnudagurinn 13. september kl.11:00 – Útskýringarmessa : allur fermingarhópurinn mætir.
13/14. október kl.18:00-21:00 – fermingarfræðsla í Glerárkirkju
10/11. nóvember kl.18:00-21:00 – fermingarfræðsla í Glerárkirkju
Sunnudagurinn 30.nóvember kl.18:00 – aðventukvöld
12/13.febrúar - kl.18:00-21:00 – fermingarfræðsla í Glerárkirkju
16/17.febrúar - kl.18:00-21:00 – fermingarfræðsla í Glerárkirkju
26-27. febrúar 14:00-14:00 – sólarhrings dansmaraþon til styrktar hjálparstarfi kirkjunnar
7.mars – æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar – messa kl.11:00: allur fermingarhópur tekur þátt.
Vegna stærðar hópsins er honum tvískipt á þessum fræðsludögum og við kynnum skiptinguna í haust.
Messur
Í Glerárkirkju er fjölbreytt helgihald og gjarnan eitthvert þema sem fylgir hverjum sunnudegi. Við ætlumst til að krakkarnir komi 10 sinnum til messu yfir veturinn með foreldrum eða forráðamönnum. Þetta er upplagt tækifæri til að virkja skírnarvottana sem á sínum tíma lofuðu að hlúa að trúarlegu uppeldi barnsins. Þau eiga allavegana ekki að koma ein! Fæst þeirra hafa tekið þátt í helgihaldi áður, þarna í ókunnugum aðstæðum eru foreldrarnir öryggi og stuðningur og mikilvægir þátttakendur í fermingarvetrinum.
Algjörlega ný nálgun á fermingarfræðslu
Komandi vetur verður öll fermingarfræðslan byggð upp á samveru, tengslum og nánd foreldra og ungmenna, þ.e.a.s. að börnin koma aldrei ein í fræðsluna, það er alltaf einhver fullorðinn með þeim, hvort sem það eru amma/afi eða foreldri. Þetta verða fjórar svona fræðslustundir yfir veturinn og þær byggjast upp á því að við borðum saman og svo vinna foreldrar og börn saman að verkefnum sem snúa að lífsviðhorfum, gildum, spurningum um tilgang, glímurnar í lífinu og samskipti.
Af hverju að gera þetta svona?
Í æskulýðsrannsókn frá 2020 kemur skýrt fram að unglingar vilja meiri tíma með foreldrum sínum. Í fermingarfræðslunni erum við að tækla tilvistarspurningar og ræða hluti sem eru ekkert endilega ræddir annarsstaðar. Það að þið takið þátt í þessu með börnunum er til þess gert að styrkja tengsl. Allt í allt er þessi nálgun lýðheilsueflandi á tímum þegar rannsóknir sýna rauð flögg varðandi aukið ofbeldi ungmenna og minnkandi samkennd.
Facebook hópur fyrir foreldra og forráðamenn
Við reynum að vera í góðu tölvupóstssambandi við foreldra og forráðamenn yfir veturinn, en það hefur líka reynst vel að nýta Facebook til þess, því hvetjum við ykkur til að finna hópinn „Fermingarhópur Glerárkirkju 2027“(tengill) og sækja um aðgang að honum.
Allar upplýsingar um fermingarfræðsluna og fermingarna verður undir hnappinum „Fermingar“ á heimasíðunni okkar, glerarkirkja.is
Kostnaður
Fræðslugjaldið fyrir veturinn er 26.188 kr og fer sá kostnaður í ýmis útgjöld vegna utanumhalds, skipulags og í að fá inn fermingarfræðara sem starfa með prestunum við fræðsluna.
Gjald fyrir ferðina í Vatnaskóg verður um 20.000kr en við munum sækja styrki og tryggja niðurgreiðslur svo endanlegt verð verður kynnt í sumar.
Fundur og spjall þriðjudaginn 19. maí kl.17:30
Tilvonandi fermingarbörn og foreldrar/forráðamenn eru velkomin á fund hér í kirkjunni þar sem við förum yfir skipulag fræðslunnar og svörum spurningum.
Allar upplýsingar um fermingarfræðsluna og fermingarnar verða undir hnappinum „Fermingar“ á heimasíðunni okkar, glerarkirkja.is. Þær upplýsingar sem hér koma fram um skipulag fræðslu eru birtar með fyrirvara um mögulegar breytingar.
Ef það eru einhverjar spurningar eða vangaveltur er hægt að senda póst á sindrigeir@glerarkirkja.is