Víðförli kominn út

Þriðja tölublað Víðförla 2010 er komið út, en Víðförli er fréttabréf Þjóðkirkjunnar. Blaðið er að þessu sinni helgað ellefta heimsþingi Lútherska heimssambandsins sem var haldið í Stuttgart í Þýskalandi 20. til 27. júlí síðastliðinn. Á þinginu var Magnea Sverrisdóttir djákni kjörin í stjórn sambandsins. Nálgast má Víðförla í pdf-formi á vef kirkjunnar.