Solveig Lára sóknarprestur á Möðruvöllum kjörin vígslubiskup

Í dag voru talin atkvæði í síðari umferð kosningar til embættis vígslubiskups á Hólum. Atkvæði féllu þannig að sr. Kristján Björnsson fékk 70 atkvæði og sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir fékk 96 atkvæði. Alls  voru 181  á kjörskrá, 174 greiddu atkvæði eða  96 %.  Þrjú atkvæði voru auð og fimm ógild. Sr. Solveig verður vígð til vígslubiskups á Hólahátíð í haust.