Söfnuðu 5.317 kr. fyrir Hjálparstarfið

Þær Rakel Ása, Berglind Eir og Linda Rós komu færandi hendi í Glerárkirkju með kr. 5.317 sem þær höfðu safnað til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. Fyrir þá upphæð er til dæmis hægt að frelsa eitt þrælabarn úr ánauð. Við í kirkjunni þökkum þeim kærlega fyrir. Nánar má fræðast um Hjálparstarf kirkjunnar á vef þeirra www.help.is. Á myndinni eru þær Rakel Ása Árnadóttir, Berglind Eir Ólafsdóttir og Linda Rós Hjálmarsdóttir, allar nemendur í fimmta bekk í Síðuskóla á Akureyri.