Sjómannadagsmessa

Sunnudaginn 7. júní kl. 11 verður sjómannadagsmesa í Glerárkirkju.  Víðir Benediktsson, skipstjóri á Húna II, les ritningarlestra og Ríkharður Ólafsson og Ída Hlín Steinþórsdóttir, sjómannsbörn, bera blómakrans til minningar um týnda og drukknaða sjómenn að messu lokinni. Blómakransinn er gefinn af Sjómannafélagi Eyjafjarðar. Sr. Jón Ómar Gunnarsson, þjónar í messunni og leiðir bænastund við minnisvarða um týnda og drukknaði sjómenn. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots.