September í Glerárkirkju

Útskýringarmessa 6. sept kl.11:00 í Glerárkirkju
Sindri og Hildur prestar þjóna, Ívar Helgason og Helga Hrönn Óladóttir syngja. Messan er hugsuð fyrir tilvonandi fermingarhóp og ykkur öll sem eruð áhugasöm um að fá útskýringu á messunni. Hvað erum við að gera og afhverju?

Lögmannshlíðarkirkja tekin aftur í notkun 13. sept kl.11 í Lögmannshlíðarkirkju
Prestar og djákni kirkjunnar þjóna og Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Petru Bjarkar Pálsdóttur. Eftir tveggja ára viðhaldsvinnu bjóðum við ykkur velkomin til messu og samveru, kaffi, kakó og kleinur í garðinum eftir stundina.

Geðveik gul messa 20. sept kl.20 í Akureyrarkirkju
Prestarnir Hildur Eir og Sindri Geir leiða messu í tilefni af Gulum september. Stutt kynning frá Píeta samtökunum, tónlist og hugvekja frá aðstandanda. Eftir stundina verður boðið upp á veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar í tilefni af fimm ára afmæli Píeta samtakanna á Akureyri.

Gospelmessa 27. sept kl.11:00 í Glerárkirkju
Eydís djákni þjónar með Gospelkór Glerárkirkju og Arnhildi Valgarðsdóttur nýjum organista kirkjunnar. Falleg og kraftmikil stund með dásamlegri tónlist.