Samvera eldri borgara

Gestur samverunnar verður Þórarinn Hannesson, forstöðumaður Ljóðaseturs Íslands og mun hann fjalla um málefni ljóðsins.
Rúta fer frá Lindasíðu kl. 14:45 og kemur við á Dvalarheimil­inu Lögmannshlíð á leið til kirkjunnar.
Að venju verður helgistund og kaffiveitingar.