Nýir starfsmenn boðnir velkomnir í messu sunnudaginn 8. september

Sunnudaginn 8. september verður messa kl. 11 í Glerárkirkju. Þar verður Ragnheiður Sverrisdóttir, djákni sett formlega inn í embætti, og Haukur Þórðarson, umsjónarmaður verður einnig boðinn velkominn til starfa. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots og prestar kirkjunnar þjóna ásamt djákna. Að messu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarsal. Allir velkomnir.