Leikjastund fyrir börn og fullorðna í safnaðarsal Glerárkirkju

Í apríl, maí og júní 2012 geta foreldrar mætt í klukkustundarlanga dagskrá í safnaðarsal Glerárkirkju með grunnskólabörnin sín. Dagskráin er opin fyrir einn bekk úr grunnskóla í senn. Þar sér Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni í Glerárkirkju, um hópeflisleiki sem ætlað er að hjálpa krökkunum úr bekknum og foreldrum þeirra að kynnast. Nánari upplýsingar gefur Pétur Björgvin djákni í síma 864 8451 eða á netfangið petur@glerarkirkja.is Prenta út auglýsingu (pdf-skjal).