Jólaaðstoð á Eyjafjarðarsvæðinu að hefjast 27. nóvember

Eins og undanfarið ár verður samstarf um jólaaðstoð milli Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins, Mæðrastyrksnefndar Akureyrar og Rauða krossins við Eyjafjörð. Þannig er sótt um að hringt er í síma 570 4090 milli kl. 10:00 og 12:00 alla virka daga frá 27. nóvember til 5. desember. Bókað er viðtal þar sem fyllt er út umsókn og koma þarf með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum. Um er að ræða kort sem nota má í verslunum til matarkaupa fyrir þá sem eiga lítið handa á milli.

Jólaaðstoð 2014

Starfið hefst nú á fimmtudaginn 27. nóvember. Hér með fylgir auglýsing sem birtist í Dagskránni miðvikudaginn 26. nóvember. (Á Pdf-formi) Framkvæmdin verður með eftirfarandi hætti.

Símatíma – bóka viðtal:

Eins og auglýst hefur verið þá hringir fólk í síma 570 4090 alla virka daga milli kl. 10-12 frá 27. nóvember til 5. desember. Þar er fólk minnt á að það þarf að hafa með sér staðgreiðsluyfirlit.

Viðtöl í húsi Einingar-Iðju Skipagötu 14, 2 hæð:

Þau verða alla virka daga kl. 13-16 á tímabilinu 1. desember til og með 12. desember. Það þarf að koma með staðgreiðsluyfirlit frá skattinum og fylla út umsókn. Sá háttur verður hafður á að hringt er í þá sem fá ekki aðstoð.

Úthlutun í húsi Einingar-Iðju Skipagötu 14, 3 hæð:

Þeir sem sótt hafa um sækja kortin þriðjudag 16. desember og miðvikudag 17. desember kl. 13-16. Auk þess er fatamarkaður og jólagjafir fyrir umsækjendur og fjölskyldur þeirra opin 13. desember hjá Rauða krossinum á Akureyri, Viðjulundi 2 og Hertex Hjálpræðishersins, Hrísalundi 1b.