Hugmyndir um sameiningar prófastsdæma og prestakalla

Skipulagsmál voru fyrirferðarmikil á kirkjuþingi á sunnudag þegar tekin voru til fyrri umræðu mál er varða sameiningar prófastsdæma og sameiningar prestakalla, bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu. Samantekt þingmála er að finna á vef kirkjuþings.  Þar er einnig að finna upptökur af umræðu um þau mál sem farið hafa í fyrstu umræðu.