Hólavatnsferð fermingarhópa

Kæru viðtakendur fædd 2007 og foreldrar.

Undirbúningur fyrir fermingarstörfin veturinn 2020 til 2021 er löngu hafinn í Glerárkirkju og vonandi hafið þið veitt því eftirtekt að búið er að opna á skráningu í fermingarfræðslu og á fermingardaga inná heimasíðu Glerárkirkju (smellið á fermingar á forsíðu glerarkirkja.is).

Um miðjan ágúst ætlum við í Glerárkirkju að bjóða öllum í væntanlegum fermingarárgangi (fædd 2007) koma með í ferð á Hólavatn í Eyjafirði. Þar reka KFUM og KFUK sumarbúðir og höfum við fengið staðinn lánaðan fyrir ferðina og mun starfsfólk KFUM og KFUK aðstoða okkur. Markmið ferðarinnar er fyrst og fremst að kynna æskulýðsstarfið sem Glerárkirkja stendur fyrir og njóta samverunnar á Hólavatni og þess sem staðurinn hefur upp á að bjóða. Í framhaldi af ferðunum fer svo fram kynning á fermingarstörfunum í Glerárkirkju. Ferðin er því ekki formlegur hluti af fermingarfræðslunni og öllum úr árganginum hjartanlega velkomið að koma með óháð því hvort þau séu að hugsa um að fermast eða ekki.

Farnar verða þrjá ferðir: Krökkum úr Glerárskóla er boðið með 17. ágúst Krökkum úr Giljaskóla er boðið með 18. ágúst Krökkum úr Síðuskóla er boðið með 19. ágúst (Og ef þú ert ekki í neinum af þessum þremur skólum er þér velkomið að skrá þig með í þá ferð sem hentar þér best.) Athugið að 34 komast með í hverja ferð svo að það er takmarkað pláss.

Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á Hólavatni fyrir hópana. Brottför er í hvert sinn frá Glerárkirkju klukkan 13:00 og komið er næsta dag klukkan 12:00 til baka.
Það okkar von að geta mætt þörfum þeirra einstaklinga úr hópnum sem búa við sérstakar aðstæður vegna fötlunar eða vegna tímabundinna eða langvarandi annarra áskorana. Til þess þurfum við aðstoð og ábendingar frá foreldrum. Því fyrr sem haft er samband við okkur, þeim mun líklegra að við getum fundið lausn sem er við allra hæfi. Þá er vert að nefna að ef einhver vill koma með en sleppa því að gista þá er það velkomið að sækja viðkomandi um kvöldið.

 

Skráning, hvað þarf að taka með og kostnaður.

Skráning fer fram á síðunni "Fermingar" sem þið finnið á forsíðu glerarkirkja.is - smellið hér

Síðasti skráningardagur er 12. ágúst en ef það er laust pláss getum við mögulega bætt við eftir það.
Við brottför þarf að greiða þátttökugjald kr. 4500 sem dekkar kostnað við mat, gistingu, rútu og starfsfólk á Hólavatni, en Glerárkirkja niðurgreiðir helming kostnaðar á móti þátttakendum. Hægt er að sækja um niðurfellingu þátttökugjalds vegna fjárhagsörðugleika. Þau sem þess óska eru beðin að hafa samband við séra Stefaníu Steinsdóttur (stefania@glerarkirkja.is) .

Hver og einn þarf að taka með lak og sæng eða svefnpoka, handklæði, sundföt eða þess háttar (fyrir þau sem vilja busla í vatninu) og fatnað til útiveru (það getur orðið kalt við varðeldinn um kvöldið), íþróttaskó (fyrir þau sem vilja fara í fótbolta) og að sjálfsögðu má ekki gleyma fötum til skiptanna og tannburstanum!

Ferðin er skipulögð og henni stjórnað prestum og djákna Glerárkirkju, Sindra Geir, Stefaníu Steinsdóttur og Sunnu Kristrúnu, og Eydísi Eyþórsdóttur, starfsmanni KFUM og K. Auk þeirra kemur starfsfólk sumarbúðanna við Hólavatn að dagskrá og matseld.

Nánari upplýsingar gefur séra Stefanía Steinsdóttir (stefania@glerarkirkja.is)