Góð aðsókn að sumarbúðum KFUM og KFUK - enn laus pláss á Hólavatni

Undirbúningur starfsins er í fullum gangi og mikill hugur í starfsfólki og sjálfboðaliðum sumarbúðanna. Einn liður í undirbúningnum er sá að sjálfboðaliðar koma í sumarbúðirnar á vormánuðum. Þeir sinna hefðbundu viðhaldi, gera allt klárt fyrir sumarið og bæta aðstöðuna á hverjum stað fyrir sig. Sannarlega gefandi verkefni.

Framundan eru námskeið fyrir starfsfólk sumarbúðanna enda gerir KFUM og KFUK nú sem fyrr miklar faglegar kröfur á allt starfsfólk sumarbúðanna.

Nú er hægt að skrá sumarbúðirnar með þrennum hætti:

1. Skrá beint á netinu smellið hér: http://skraning.kfum.is/

2. Hafa samband við Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtvegi 28 eða í síma 588-8899 (opið virka daga 9:00 til 17:00)

3. Einnig hægt að senda tölvupóst skraning(hjá)kfum.is