Gleði í mótlæti

Miðvikudagskvöldið 21. mars kl. 20:00 flytur sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur, erindi í safnaðarsal Glerárkirkju sem nefnist: ,,Gleði í mótlæti.” Að erindi loknu ræðir hann efni kvöldsins við dr. Bjarna Guðleifsson, náttúrufræðing. Dagskráin er hluti af umræðukvöldaröð prófastsdæmisins og Glerárkirkju. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis, tekið er á móti frjálsum framlögum í kaffisjóð. Yfirskrift samræðukvöldanna á vorönn 2012 er VEGUR TRÚARINNAR. Þetta er sjötta kvöldið af átta. Markmið kvöldanna er að skapa vettvang til að ræða um andlegt líf og þýðingu þess fyrir trúað fólk, deila reynslu af vegferðinni og ræða saman um hana.

Það er Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi í samstarfi við Glerárkirkju sem stendur fyrir samræðukvöldunum eins og undanfarin misseri. Hvert kvöld hefst með helgistund og innleggi út frá Sæluboðun Meistarans í Fjallræðunni. Að loknu kaffihléi tekur formælandi kvöldsins upp samtal við annan einstakling um efni kvöldsins. Það samtal leiðir svo inn í almennt samtal viðstaddra.

Á þessu sjöunda kvöldi eru eftirfarandi spurningar lagðar til grundvallar:

    Hvernig getur gleðin verið grunntilfinning trúarinnar þegar á móti blæs?
    Hvernig sigrar trúin illt með góðu?
    Hvernig breiðist trúin út?

Nánar má fræðast um umræðukvöldin á vef prófastsdæmisins.

Upptökur frá erindum fyrri kvölda eru aðgengilegar á einum stað á vef Glerárkirkju