Fræðslukvöldin byrja um siðbót í nútímanum 1. mars

Fyrsta fræðslukvöldið verður á miðvikudaginn 1. mars kl. 20 undir yfirskriftinni Sístæð siðbót í nútímanum. Efni kvöldsins verður Samfélagsþróunin og trúarlífið: Hvað er framundan? Í erindinu mun Rúnar Vilhjálmsson fara yfir stöðu og þróun trúarlífs í samfélaginu í ljósi hugmynda um nútímavæðingu og veraldarhyggju. Þá er fjallað um rannsóknir og niðurstöður um þróun trúarlífs á Íslandi og niðurstöður túlkaðar í ljósi fræðilegrar umræðu. Loks verður fjallað um framtíðarhorfur trúarlífs og trúarstofnana á Íslandi.

Rúnar Vilhjálmsson er prófessor í félagsfræði við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Helstu rannsóknarsvið Rúnars innan félagsfræðinnar eru heilsufélagsfræði, félagsfræði unglinga, og félagsfræði vísinda. Rúnar hefur meðal annars fengist við rannsóknir á geðheilbrigði fullorðinna, áhættuhegðun unglinga og árangri háskólamanna í kennslu og rannsóknum. Rúnar er núverandi formaður Félags prófessora við ríkisháskóla og stjórnarmaður í Hinu íslenska biblíufélagi.

erindi_runar_vilhjalmsson