Fermingarfræðsla Glerárkirkju hefst í þessari viku

Nú fer fermingarfræðslan af stað í Glerárkirkju. Í þessari viku verða kynningarfundir, einn fyrir börn í hverjum skóla. Væntanleg fermingarbörn úr Glerárskóla eiga að mæta á kynningarfund kl. 17 þriðjudaginn 10. september. Börn úr Síðuskóla mæta á sama tíma miðvikudaginn 11. september og börn úr Giljaskóla kl. 17 á fimmtudeginum 12. september. Börnunum hefur verið sent bréf með upplýsingum um fræðsluna, og skráningablaði. Mikilvægt er að skila skráningarblaðinu á kynningarfundinum.