Átt þú gamlar myndir?

Í desember næstkomandi fögnum við 20 ára vígsluafmæli Glerárkirkju. Af því tilefni leitum við nú eftir myndum sem tengjast starfi kirkjunnar og Lögmannshlíðarsóknar frá stofnun hennar. Átt þú myndir sem við megum birta hér á heimasíðunni og víðar? Endilega hafðu samband við Pétur djákna í síma 864 8451 eða á netfangið petur@glerarkirkja.is

Unnur Ólafsdóttir og sr. Pálmi Matthíasson. Myndina tók Guðrún Sigurðardóttir í 70 ára afmælisfagnaði kvenfélagsins Baldursbrár.

Sr. Pétur Þórarinsson og Ingibjörg Svava Siglaugsdóttir. Guðrún tók myndina við sama tækifæri.