12 spora fundir á mánudögum - mannrækt öllum opin

12 spora fundir í Glerárkirkju verða á mánudögum kl. 20:00 í vetur. Fyrsti fundur verður mánudagskvöldið 12. september. Fyrstu þrjú kvöldin eru svokölluð opin kvöld þar sem öllum gefst kostur á að kynna sér starfið. Frá og með fjórða kvöldi geta engir nýir bæst í hópinn. Nánar má fræðast um Tólf spora starfið á vefsíðunni Vinir í bata eða með því að hringja í umsjónarfólk starfsins í Glerárkirkju, þær Heiðrúnu (862-4703) og Önnu (699-7627) á milli kl. 18:00 og 20:00.

Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja dýpka sínar tilfinningar og öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu.

Auglýsing til útprentunar.