TTT starf fyrir 5-7 bekk

TTT er vikulegt barnastarf alla fimmtudaga frá 14:00-15:30 fyrir 5-7 bekk í Partýherbergi Glerárkirkju (inngangur í hliðarhurð norðaustan megin).

Húsið opnar 14:00 og til 14:30 er krökkunum frjálst að spila borðspil, fótboltaspil, teikna, föndra, mála eða bara slaka á og spjalla í kósýhorninu og hlusta á tónlist.

Nánari upplýsingar hjá Sunnu Kristrúnu djákna í síma 864-8451 

Minnum á lokaðan facebookhóp foreldra: TTT starf Glerárkirkju

Ókeypis þátttaka og allir velkomnir, strákar og stelpur ;)

Opið hús frá 14:00-14:30
Dagskrá frá 14:30-15:30