Vorhátíð KFUM og KFUK í Sunnuhlíð

Vorhátíð KFUM og KFUK á Akureyri verður í félagsheimili þeirra í Sunnuhlíð á Akureyri laugardaginn 26. mars frá 14:00 til 16:00. Þennan dag hefst einnig skráning í allar sumarbúðir KFUM og KFUK. Á hátíðinni verður gestum boðið upp á fríar veitingar, kaffi og Svala fyrir börnin. Sýnt verður sumarbúðaleikrit, myndir frá síðasta sumri og kl. 15.00 mun töframaðurinn Einar Einstaki koma fram. Lukkuhjól, andlitsmálun, þythokký, fótboltaspil og Wii-leikir eru hluti þess sem hægt verður að taka þátt .