Vígsla nýbyggingar á Hólavatni

Næsta sunnudag, 19. ágúst, verður vígsluathöfn nýrrar byggingar á Hólavatni, sumarbúðum KFUM og KFUK í Eyjafirði kl. 14:00. Að vígsluathöfninni lokinni verður árleg kaffisala Hólavatns. Þá gefst tækifæri til að kaupa kaffi og ljúffengar kaffiveitingar til styrktar starfinu á Hólavatni. Sjá nánar á kfum.is.