Útvarpsguðsþjónusta Glerárkirkju 12. júlí n.k.

Sunnudaginn 12. júlí n.k. verður útvarpsguðsþjónustan á Ríkisútvarpinu kl. 11 í umsjón Glerárkirkju. Guðsþjónustan var hljóðrituð í Akureyrarkirkju í júníbyrjun. Kór Glerárkirkju syngur undir stjórn Valmars Väljaots, Aníta Jónsdóttir og Hermann R. Jónsson lesa ritningarlestra og sr. Guðmundur Guðmundsson, héraðsprestur þjónar fyrir altari.

 Hér má hlusta á guðsþjónustuna: http://ruv.is/thaettir/ras1.

Frétt á vef kirkjunnar um úrvarpsguðsþjónustur frá norðurlandi.