Tónleikum Margrétar Árnadóttur sem áttu að vera í kvöld hefur verið frestað

Fyrir tveimur árum gaf Margrét Árnadóttir út plötuna Hugarró í samstarfi við Kristján Edelstein gítarleikara. Platan inniheldur 11 bænalög í hugljúfum útsetningum. Á tónleikunum verða meðal annars flutt lög af plötunni. Sköpuð verður róandi stemning sem er til þess fallin að leita inná við, gleyma amstri dagsins og hjálpa okkur að takast á við næsta dag með frið í hjarta. 

 

Söngur: Margrét Árnadóttir

Gítar: Kristján Edelstein

Gítar: Daniele Basini

 

Miðasala við innganginn.

Miðaverð: 3500.-