Sunnudagur 22. nóvember

Prjónamessa og Englakrakkakirkja í Glerárkirkju sunnudaginn 22. nóvember 

Það verður notaleg og fjölbreytt dagskrá hjá okkur næsta sunnudag og allir eru hjartanlega velkomnir!

 Kl. 11:00 – Prjónamessa

Taktu endilega með þér prjónana, heklið eða aðra handavinnu og njóttu þess að láta hendurnar vinna á meðan þú hlustar og tekur þátt í messunni. 🧶

Hildur Björk prestur þjónar ásamt Kór Glerárkirkju undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. 

kl. 11:30 – Hádegismatur og samvera Boðið verður upp á hádegismat í kirkjunni frá kl. 11:30 fyrir fjölskyldur sem eru á leið í Krakkakirkju. Messugestir bætast svo í hópinn að messu lokinni.

Notaleg stund þar sem kynslóðirnar koma saman yfir góðum mat 

 Kl. 12:00 – Englakrakkakirkja
Sögur, söngur og föndur! Dásamleg tengslastund fyrir börn og fólkið þeirra.

Verið hjartanlega velkomin í Glerárkirkju!