Sunnudaginn 15. nóvember verður Allra heilagra messa hér í Glerárkikju kl. 11:00. Þá minnumst við þeirra sem hafa kvatt héðan frá kirkjunni á síðastliðnu ári. Sindri Geir prestur þjónar, Gospelkór Glerárkirkju flytur ljúfa tónlist undir stjórn Helgu Hrannar og Arnhildur leikur undir.
Krakkairkjan er á sínum stað kl. 12:00 og boðið er upp á hádegismat í kirkjunni frá kl. 12:30. þar mætast messugestir og þeir sem eru á leið í krakkakirkjuna.
Verið hjartanlega velkomin!