Skólaheimsóknir á aðventu

Það hefur verið okkur í Glerárkirkju mikið ánægjuefni hve margir hópar úr skólum norðan ár (að sjálfsögðu eru kennarar úr öðrum skólum líka velkomnir með sína nemendur) hafa þegið boð um þátttöku á fræðslustundum á aðventu í Glerárkirkju. Á aðventu 2012 munum við halda okkar striki og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá þar sem kennarar geta valið úr nokkrum fræðsluliðum eins og verið hefur undanfarin ár.

Tekið er á móti hópum frá fimmtudeginum 29. nóvember og fram til föstudagsins 14. desember.   Skráning fer fram hjá Sverri í Glerárkirkju (sverrir[hjá]glerarkirkja.is / 464 8800). Hann gefur einnig upplýsingar um nánari tímasetningar en bókað er eftir viðhorfinu ,,fyrstur kemur, fyrstur fær.“ – Gjarnan skoðum við óskir um aðrar tímasetningar seinna í desember, ef slíkt hentar betur.

Mánudagar, 3. des / 10. des Kl. 08:30 / 09:15 / 10:00 / 10:45 / 11:30

Þriðjudagar, 4. des / 11. des Kl. 08:30 (einnig 10:00 / 10:45 og 11:30 en aðeins fyrir litla hópa)

Miðvikudagar, 5. des / 12. des Kl. 08:30 / 09:15

Fimmtudagar, 29. nóv / 6. des / 13. des Kl. 08:30 / 09:15 / 10:45 / 11:30

Föstudagar,  30. nóv / 7. des / 14. des Kl. 08:30 / 09:15 / 10:45 / 11:30

Fjölbreytt dagskrá er í boði og eru kennarar hvattir til að kynna sér hana og taka fram við pöntun á heimsóknartíma hvaða dagskrá er óskað eftir. Gjarnan má pússla saman fleiri en einum dagskrárlið. Að sjálfsögðu er sem fyrr einnig velkomið að biðja um öðru vísi dagskrá en þá sem stungið er upp á hér (til dæmis í tengslum við það þegar hópar koma og færa gjöf til hjálparstarfsins). Í slíkum tilfellum eru viðkomandi beðnir um að hafa samband beint við þann prest/djákna sem óskað er eftir að taki á móti viðkomandi hópi. - (sr. Gunnlaugur, 864 8455, sr. Arna, 864 8456, Pétur Björgvin djákni, 864 8451).

ÁRÍÐANDI: EF BÖRN MEÐ OFNÆMI ERU Í HÓPNUM ERU KENNARAR BEÐNIR UM AÐ KOMA MEÐ SÉRFÆÐI MEÐ BARNINU EF HÓPURINN ER SKRÁÐUR í PIPARKÖKUSTUND.

Eftirfarandi dagskrá er í boði:

1. Helgistund á aðventu. 10 – 15 mínútna helgistund þar sem fléttað er saman hversdagsleikanum, væntingum einstaklinganna, tilhlökkun barnsins og boðskapi jólanna, allt eftir aldurshópi. Helgistundir þessar eru ýmist í umsjón prests eða djákna.

2. Sýning á verkum Díönu Hermannsdóttur skoðuð. 10  mínútna gangur um anddyri kirkjunnar undir leiðsögn. Að þeim gangi loknum tekur við fimm mínútna fræðsluinnlegg um myndir og sjálfsmyndir. Umsjón: Prestur eða djákni.

3. Biblíubrúðurnar og fyrstu jólin. Í kirkjunni er komið fyrir litlum brúðum sem sýna sögu fyrstu jólanna. Um leið og uppstillingin á brúðunum er skoðuð er sagan af fyrstu jólunum sögð. Lengd 5 til 15 mínútur eftir aldri og stærð hópa. Umsjón: Prestur eða djákni.

4. Aðventuljósin. Sögð er saga af tilurð aðventukransins skv. þýskri hefð og rætt um tákn og nöfn á aðventukransi og –kertum. Dagskráin tekur 10 til 20 mínútur eftir aldri og óskum viðkomandi. Umsjón: Prestur eða djákni.

5. Kynning á verkefni KFUM og KFUK: „Jól í skókassa“ sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Þó verkefninu sé lokið hér heima fyrir þessi jól er áhugavert að fræðast um verkefnið en hópur ungs fólks innan KFUM og KFUK hefur staðið að verkefninu á Íslandi frá árinu 2004. Á þeim tíma  hafa safnast ríflega 28.000 gjafir sem sendar hafa verið til Úkraínu og dreift af KFUM þar í landi  á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Umsjón: Æskulýðsfulltrúi KFUM og KFUK eða djákni

6. Jólaguðsspjallið og við. Notaleg spjallstund í kapellu um jólaguðsspjallið. ATH: Aðeins fyrir litla hópa. Umsjón: Prestur eða djákni. Dagskráin tekur 10 mínútur. ATH: Hægt er að skipta hópi upp, þannig að hluti hóps sé í þessari dagskrá á meðan hinn hluti hópsins er í nr. 2 – svo er skipt.

7. Piparkökur og mjólkurglas. Þeir hópar sem það kjósa (muna að bóka þennan þátt) eru boðnir í piparkökur og mjólkur- eða vatnsglas í tengslum við kirkjuheimsókn á aðventu. ATH: Ef einhver í hópnum eru með ofnæmi þá vinsamlegast takið með e-ð í staðinn fyrir piparkökurnar.

Umsjón með þessum dagskrárlið í starfi Glerárkirkju hefur Pétur Björgvin djákni, s. 864 8451, netfang petur[hjá]glerarkirkja.is