Samhygð - 9. mars í Akureyrarkirkju

Ástin, drekinn og dauðinn

Vilborg Davíðsdóttir, rithöfundur og þjóðfræðingur, flytur fyrirlestur á vegum Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð, í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju 9. mars nk.

Á 999 daga tímabili kvaddi Vilborg eiginmann sinn, tengdamóður, föður og litla dótturdóttur. Bók hennar um þessa reynslu, Ástin, drekinn og dauðinn, hefur vakið mikla athygli og hlotið lof fyrir að fjalla um ástvinamissi og sorg á áhrifamikinn en um leið jarðbundinn hátt. Þar lýsir hún vegferð sinni og Hennar heittelskaða með heilakrabba sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja, en þá greindist faðir hennar einnig með krabbamein. Í erindi sínu mun Vilborg fjalla um hvernig lífsógnandi sjúkdómur breytir tilveru allra sem í kring standa, um mikilvægi þess að meðtaka dauðann sem hluta af lífinu og þær gjafir sem sorgin færir okkur. Bók hennar veitir í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. En hún er ekki síður óður til kærleikans, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífsævintýrinu.

Erindi Vilborgar hefst klukkan 20:00 og er öllum opið, aðgangur ókeypis.